Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 40
Málsnúmer 1612002F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 351. fundur - 15.02.2017
Fundargerð 40. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar lögð fram til afgreiðslu á 351. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Gunnsteinn Björnsson kynnti fundargerð. Bjarni Jónsson tók til máls.
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 40 Tekin fyrir styrkbeiðni frá Karlakórnum Heimi, dagsett 8. desember 2016, en ætlunin er að nýta styrkinn til að endurnýja og bæta við kórpöllum fyrir kórfélaga. Nefndin samþykkir að veita kórnum styrk að upphæð kr. 100.000,- sem tekinn verður af fjárhagslið 05890. Bókun fundar Afgreiðsla 40. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 351. fundi sveitarstjórnar 15. febrúar 2017 með átta atkvæðum
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 40 Lagt fram erindi frá framkvæmdastjóra Söguseturs íslenska hestsins, dags. 27. janúar 2017, þar sem óskað er eftir stuðningi að upphæð kr. 1.500.000,- til starfsemi setursins á árinu 2017.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkar fyrir erindið og fagnar áformum um frekari uppbyggingu og eflingu starfsemi setursins. Nefndin samþykkir að styrkja Sögusetrið um kr. 1.500.000,- sem tekinn verður af lið 05890.
Gunnsteinn Björnsson formaður vék af fundi undir afgreiðslu þessa liðar. Bókun fundar Afgreiðsla 40. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 351. fundi sveitarstjórnar 15. febrúar 2017 með sjö atkvæðum. Gunnsteinn Björnsson óskar bókar að hann situr hjá við afgreiðslu þessa liðar. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 40 Lagður fram til kynningar samningur Sveitarfélagsins Skagafjarðar við Alþýðulist um rekstur upplýsingamiðstöðvar Norðurlands vestra í Varmahlíð. Bókun fundar Afgreiðsla 40. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 351. fundi sveitarstjórnar 15. febrúar 2017 með átta atkvæðum
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 40 Lögð fram til kynningar bréf frá mennta- og menningarmálaráðuneyti, dags. 27. desember 2016, og bókun byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar, dags. 26. janúar 2017, þar sem tilnefndir eru fulltrúar beggja aðila í þarfagreiningarnefnd um byggingu menningarhúss á Sauðárkróki.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd fagnar tilnefningunum og telur löngu tímabært að ljúka samningi um menningarhús í Skagafirði sem lutu annars vegar að uppbyggingu og endurbótum á Menningarhúsinu Miðgarði og hins vegar að viðbyggingu og endurbótum á Safnahúsi Skagfirðinga. Bókun fundar Afgreiðsla 40. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 351. fundi sveitarstjórnar 15. febrúar 2017 með átta atkvæðum -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 40 Lagt fram til kynningar erindi frá forseta sveitarstjórnar og formanni byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar, dags. 18. nóvember 2016, til mennta- og menningarmálaráðherra sem varðar starfsemi Söguseturs íslenska hestsins á Hólum í Hjaltadal. Bókun fundar Afgreiðsla 40. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 351. fundi sveitarstjórnar 15. febrúar 2017 með átta atkvæðum
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 40 Lögð fram til kynningar umsókn Sveitarfélagsins Skagafjarðar í verkefnið Ísland ljóstengt 2017. Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd fagnar áformum um ljósleiðaravæðingu dreifbýlis í Skagafirði. Bókun fundar Afgreiðsla 40. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 351. fundi sveitarstjórnar 15. febrúar 2017 með átta atkvæðum