Fara í efni

Lónkot 146557 - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 1703222

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 778. fundur - 23.03.2017

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 16. mars 2017 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra, úr máli 1703202. Óskað er umsagnar um umsókn dagsetta 16. mars 2017 frá Júlíu Þórunni Jónsdóttur, kt. 221182-4489, Lónkoti, 566 Hofsósi f.h. Lónkot Sveitasetur ehf., kt. 461015-0260, um leyfi til að reka gististað í flokki II og veitingastað í flokki II að Lónkoti, 566 Hofsósi.

Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 46. fundur - 28.04.2017

Með tölvubréfi dags. 16.03.2017 óskar Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra eftir umsögn um umsókn Júlíu Þ. Jónsdóttur kt. 221182-4489, fyrir hönd Lónkots Sveitaseturs ehf. kt.461015-0260. Umsókn um leyfi til að reka gististað í flokki II og veitingastað í flokki II að Lónkoti 566 Hofsós. Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur til að rekstrarleyfi verði einungis veitt til 1. janúar 2018.