Fara í efni

Ósk um framlengingu á samningi um rekstur Félagsheimilisins Ketiláss

Málsnúmer 1705209

Vakta málsnúmer

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf Skagafjarðar - 46. fundur - 29.05.2017

Tekið fyrir erindi frá Stefaníu Hjördísi Leifsdóttur, fyrir hönd Ferðaþjónustunnar Brúnastöðum ehf., þar sem óskað er eftir framlengingu á samningi um rekstur Félagsheimilisins Ketiláss.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að framlengja samninginn til 1. maí 2018 en að auglýst verði eftir rekstraraðila fyrir húsið frá þeim tíma. Auglýst verði eigi síðar en haustið 2017.