Fiskeldi og Samtök sjávarútvegssveitarfélaga
Málsnúmer 1707133
Vakta málsnúmerByggðarráð Svf. Skagafjarðar - 790. fundur - 24.07.2017
Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga þar sem samþykkt er að bjóða sveitarfélögum sem hafa fiskeldi eða áform um slíkt innan síns sveitarfélags að sækja um aðild að samtökunum. Ef einhver sveitarfélög hafa áhuga á því þá mun stjórn boða til auka aðalfundar í haust til að fá samþykki fyrir breytingum á samþykktum samtakanna þar sem hlutverk samtakanna verður útvíkkað svo lagareldissveitarfélög geti gengið formlega í samtökin.