Byggingarnefnd Sundlaugar Sauðárkróks - 13
Málsnúmer 1710009F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 360. fundur - 08.11.2017
Fundargerð 13. fundar byggingarnefndar Sundlaugar Sauðárkróks lögð fram til afgreiðslu á 360. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggingarnefnd Sundlaugar Sauðárkróks - 13 Farið yfir opnun tilboða í útboðsverkið Sundlaugin á Sauðárkróki. Tilboðin voru opnuð fimmtudaginn 14.september 2017 á skrifstofu Stoðar ehf, verkfræðistofu, kl. 13. Eitt tilboð barst frá K- Tak ehf sem var 128,6% af kostnaðaráætlun.
Bygginganefnd samþykkir að óska eftir fundi með bjóðanda ásamt fulltrúum verkfræðistofunnar, þriðjudaginn 24.október n.k. kl 10. Bókun fundar Fundargerð 13. fundar byggingarnefndar Sundlaugar Sauðárkróks staðfest á 360. fundi sveitarstjórnar 8. nóvember 2017 með níu atkvæðum.