Borgarmýri 1a - Umsókn um byggingarleyfi.
Málsnúmer 1710022
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 57. fundur - 12.10.2017
Eyjólfur Sigurðsson kt. 090668-3669 sækir, fh Ártorgs ehf. kt. 700605-1320 um heimild til að breyta útliti fjöleignahússins að Borgarmýri 1a á Sauðárkróki. Útlitsbreytingin er breyting á gluggum á norðurhlið, stækkun glugga á austurhlið og breytingar á hurð á austurhlið. Meðfylgjandi uppdrættir frá Stoð ehf verkfræðistofu gerðir af Magnúsi Ingvarssyni kt. 171160-3249 gera grein fyrir erindinu og breyttu innra skipulagi í húsinu tilheyrandi eignarhluta Ártorgs ehf. Uppdrætti dagsettir 26. september 2017 blöð A-100, A-101, A-102, A-103 og A-104 í verki 744120. Erindið samþykkt, Byggingarleyfi veitt. Fyrir liggur samþykki meðeigenda í Borgarmýri 1a.