Fara í efni

Ráðning slökkviliðsstjóra

Málsnúmer 1710151

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 797. fundur - 26.10.2017

Vernharð Guðnason, slökkviliðsstjóri, sem verið hefur í launalausu leyfi frá 1.desember 2016, hefur sagt upp starfi sínu hjá Brunavörnum Skagafjarðar frá og með 1.desember n.k. Svavar Atli Birgisson, varaslökkviliðsstjóri hefur gegnt starfi slökkviliðsstjóra í leyfi Vernharðs Guðnasonar. Sveitarstjóri leggur til að Svavar Atli Birgisson verði ráðinn sem slökkviliðsstjóri frá 1.desember n.k. og að auglýst verði eftir varaslökkviliðsstjóra. Byggðarráð samþykkir tillöguna.
Byggðarráð þakkar Vernharði Guðnasyni samstarfið á liðnum árum og óskar Svavari Atla velfarnaðar í starfi.