Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 52
Málsnúmer 1712015F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 363. fundur - 23.01.2018
Sigríður Svavarsdóttir forseti tekur aftur við fundarstjórn.
Fundargerð 52. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar lögð fram til afgreiðslu á 363. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Gunnsteinn Björnsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 52 Á sameiginlegan fund atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar, landbúnaðarnefndar og umhverfis- og samgöngunefndar komu til viðræðu fulltrúar Vegagerðarinnar, Gunnar H. Guðmundsson svæðisstjóri, Heimir Gunnarsson tæknifræðingur og V. Rúnar Pétursson yfirverkstjóri.
Áttu menn góðan fund þar sem rædd voru ýmis mál er varða starfsemi sveitarfélagsins og Vegagerðarinnar. Bókun fundar Afgreiðsla 52. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 363. fundi sveitarstjórnar 23. janúar 2018 með átta atkvæðum.