Fara í efni

Skagfirðingabraut 24, Hótel Mikligarður - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 1801174

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 61. fundur - 06.02.2018

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 19. janúar 2018 úr máli nr. 1801300 frá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra þar sem óskað er umsagnar um umsókn Spíru ehf kt. 420207-0770, um leyfi til að reka veitingahús í flokki III, Hótel Miklagarð, í heimavist FNV að Skagfirðingabraut 24 á Sauðárkróki. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 814. fundur - 08.02.2018

Lagðir fram tölvupóstar úr máli 1801300 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra, dagsettir 19. og 24. janúar 2018. Þar er óskað umsagnar um umsókn Spíru ehf., kt. 420207-0770, um leyfi til að reka gististað í flokki III - Hótel Mikligarður í heimavist Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Skagfirðingabraut 24, 550 Sauðárkróki, tímabilið 1. júní til 20. ágúst 2018.
Byggðarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.