Ráðstefna um flug á Akureyri 13. apríl
Málsnúmer 1803268
Vakta málsnúmerByggðarráð Svf. Skagafjarðar - 822. fundur - 05.04.2018
Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Markaðsstofu Norðurlands, dagsettur 28. mars 2018 þar sem kynnt er ráðstefna um flugmál á Akureyri þann 13. apríl 2018. Markaðsstofa Norðurlands og flugklasinn Air 66N standa fyrir ráðstefnunni.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf Skagafjarðar - 57. fundur - 27.04.2018
Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 5. apríl 2018 um ráðstefnu um flugmál sem haldin verður á Akureyri 3. maí 2018. Á ráðstefnunni mun fulltrúi Super Break verða með erindi þar sem rakin verður reynsla bresku ferðaskrifstofunnar af því að fljúga fólki til Akureyrar, hvert framhaldið verður hjá þeim og dregið fram hversu mikil áhrif þessar flugferðir hafa fyrir ferðaþjónustu á Norðurlandi. Einnig verður rætt um Akureyrarflugvöll, hvernig staðan er og hvað þarf til að völlurinn geti sinnt sem best auknu millilandaflugi. Jafnframt verður rætt um tengingu Akureyrar við Keflavíkurflugvöll og stöðu innanlandsflugs á landinu.