Landbúnaðarnefnd - 198
Málsnúmer 1804005F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 367. fundur - 25.04.2018
Fundargerð 198. fundar landbúnaðarnefndar lögð fram til afgreiðslu á 367. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.Gunnsteinn Björnsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Landbúnaðarnefnd - 198 Undir þessum dagskrárlið komu refa- og minkaveiðimenn til viðræðu um veiðitilhögun ársins 2018. Mættir voru Þorsteinn Ólafsson, Hans Birgir Friðriksson, Stefán Sigurðsson, Birgir Hauksson, Herbert Hjálmarsson, Kristján B. Jónsson, Marinó Indriðason og Kári Gunnarsson.
Lögð fram drög að veiðiáætlun ársins 2018.
Landbúnaðarnefnd samþykkir áætlunina með áorðnum breytingum. Einnig samþykkir nefndin að greiða vegna refaveiða ráðinna veiðimanna 18.000 kr. fyrir grendýr, 7.000 kr. fyrir hlaupadýr og vetrarveiði. Verðlaun til annarra fyrir unninn ref 7.000 kr. Greitt verður vegna minkaveiða ráðinna veiðimanna 7.200 kr. fyrir unnið dýr. Verðlaun til annarra verða 1.800 kr. á dýr. Bókun fundar Afgreiðsla 198. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 367. fundi sveitarstjórnar 25. apríl 2018 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðarnefnd - 198 Farið yfir fjallskilareglugerð Skagafjarðar með tilliti til athugasemda sem hafa borist.
Landbúnaðarnefnd telur að ekki séu efni til að gera breytingar á reglugerðinni sem var staðfest af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti á árinu 2017. Bókun fundar Afgreiðsla 198. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 367. fundi sveitarstjórnar 25. apríl 2018 með níu atkvæðum.