Fara í efni

Refa- og minkaeyðing 2018

Málsnúmer 1804060

Vakta málsnúmer

Landbúnaðarnefnd Svf. Skagafjarðar - 198. fundur - 20.04.2018

Undir þessum dagskrárlið komu refa- og minkaveiðimenn til viðræðu um veiðitilhögun ársins 2018. Mættir voru Þorsteinn Ólafsson, Hans Birgir Friðriksson, Stefán Sigurðsson, Birgir Hauksson, Herbert Hjálmarsson, Kristján B. Jónsson, Marinó Indriðason og Kári Gunnarsson.

Lögð fram drög að veiðiáætlun ársins 2018.
Landbúnaðarnefnd samþykkir áætlunina með áorðnum breytingum. Einnig samþykkir nefndin að greiða vegna refaveiða ráðinna veiðimanna 18.000 kr. fyrir grendýr, 7.000 kr. fyrir hlaupadýr og vetrarveiði. Verðlaun til annarra fyrir unninn ref 7.000 kr. Greitt verður vegna minkaveiða ráðinna veiðimanna 7.200 kr. fyrir unnið dýr. Verðlaun til annarra verða 1.800 kr. á dýr.