Reykir 145950 - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis
Málsnúmer 1805181
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 73. fundur - 19.07.2018
Lagður fram tölvupóstur dagsettur 24. maí 2018 frá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra úr máli 1805294. Óskað er umsagnar um umsókn Brynjólfs Þórs Jónssonar kt. 160378-5579, f.h. Drangeyjarjarlsins ehf. kt. 650418-0340 um leyfi til að reka gististað í flokki IV í íbúðarhúsi að Reykjum á Reykjaströnd. Gistiaðstaða fyrir 12 manns. Einnig veitingasölu fyrir 25 manns í aðstöðuhúsi. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina. Viggó Jónsson vék af fundi við afgreiðslu þessa liðar.