Afslættir vegna þátttakenda á Landsmóti UMFÍ og Landsmóti UMFí 50 á Sauðárkróki 2018
Málsnúmer 1806034
Vakta málsnúmerFélags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar - 255. fundur - 07.06.2018
Félags- og tómstundanefnd ákveður að styðja við framkvæmd Landsmóts UMFÍ og Landsmóts UMFÍ 50 með því að veita 200 kr afslátt af aðgangseyri að sundlaugum sveitarfélagsins fyrir alla fullorðna einstaklinga 18 ára og eldri dagana 12. - 15. júlí n.k.
Þorvaldur Gröndal vék af fundi að loknum þessum dagskrárlið.