Lagður fram tölvupóstur dagsettur 24. ágúst 2018 frá FISK-Seafood ehf., þar sem sveitarfélaginu er boðinn forkaupsréttur að skipinu Klakki SK-5, skipaskrárnúmer 1472. Skipið er selt án aflahlutdeilda sem hafa verið og verða fluttar á önnur skip FISK-Seafood ehf. Afstaða byggðarráðsmanna til þessa máls var fengin með tölvupóstssamskiptum þann 24. ágúst 2018 og kynnt forstjóra FISK-Seafood ehf. samdægurs. Byggðarráð staðfestir fyrri afstöðu til erindisins og samþykkir að nýta ekki forkaupsrétt sveitarfélagsins.
Afstaða byggðarráðsmanna til þessa máls var fengin með tölvupóstssamskiptum þann 24. ágúst 2018 og kynnt forstjóra FISK-Seafood ehf. samdægurs.
Byggðarráð staðfestir fyrri afstöðu til erindisins og samþykkir að nýta ekki forkaupsrétt sveitarfélagsins.