Fara í efni

Veitunefnd - 52

Málsnúmer 1809004F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 373. fundur - 19.09.2018

Fundargerð 52. fundar veitunefndar lögð fram til afgreiðslu á 373. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Gísli Sigurðsson kynnti fundargerð. Bjarni Jónsson, Gísli Sigurðsson og Stefán Vagn Stefánsson kvöddu sér hljóðs.
  • Veitunefnd - 52 Tekið var fyrir erindi frá Sigurði Jóhannssyni á Ytra-Vatni varðandi mögulega tengingu við vatnslögn Skagafjarðarveitna og áform Skagafjarðarveitna vegna hitaveitu í Efri - Byggð.
    Sviðstjóra falið að kanna möguleika á tengingu við stofnlögn Skagafjarðarveitna fyrir kalt vatn.
    Unnið er að 5 ára framkvæmdaáætlun varðandi hitaveituframkvæmdir í dreifbýli og verður hún kynnt síðar í haust.
    Bókun fundar Afgreiðsla 52. fundar veitunefndar staðfest á 373. fundi sveitarstjórnar 19. september 2018 með níu atkvæðum.
  • Veitunefnd - 52 Farið var yfir 5 ára framkvæmdaáætlun hitaveituvæðingar í dreifbýli fyrir árin 2019 til 2023.
    Sviðstjóra falið að vinna áfram að undirbúningi áætlunarinnar.
    Stefnt er á að kynna framkvæmdaáætlun síðar í haust.
    Bókun fundar Afgreiðsla 52. fundar veitunefndar staðfest á 373. fundi sveitarstjórnar 19. september 2018 með níu atkvæðum.