Byggðarráð Skagafjarðar - 838
Málsnúmer 1809022F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 374. fundur - 18.10.2018
Fundargerð 838. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 374. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 838 Lagt fram bréf frá Íbúðalánasjóði, dagsett 11. september 2018 þar sem fram kemur að sjóðurinn leitar eftir 2-4 sveitarfélögum til að taka þátt í tilraunaverkefni um uppbyggingu í húsnæðismálum á landsbyggðinni.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að sækja um að Sveitarfélagið Skagafjörður verði þátttakandi í ofangreindu tilraunaverkefni. Bókun fundar Afgreiðsla 838. fundar byggðarráðs staðfest á 374. fundi sveitarstjórnar 18. október 2018 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 838 Lagt fram bréf frá Skotfélaginu Markviss, Blönduósi, dagsett 1. september 2018, þar sem félagið óskar eftir fjárstuðningi vegna uppbyggingar aðstöðuhúss við riffilbraut á skotsvæði félagsins við Blönduós.
Byggðarráð samþykkir að hafna erindinu en bendir umsækjendum á möguleika á að sækja í Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra. Bókun fundar Afgreiðsla 838. fundar byggðarráðs staðfest á 374. fundi sveitarstjórnar 18. október 2018 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 838 Málið áður á 825. fundi byggðarráðs þann 26. apríl 2018 og 829. fundi byggðarráðs þann 7. júní 2018. Óli Jóhann Ásmundsson óskar eftir framlagi frá sveitarfélaginu til koma upp minnismerki á Hofsósi um fyrstu vesturfarana og staðsetja á stalli sem stendur við norðurenda göngubrúarinnar yfir Hofsá. Byggðarráð samþykkti að vísa erindinu til skipulags- og byggingarnefndar og atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar til umsagnar.
Borist hefur jákvæð umsögn atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar.
Byggðarráð samþykkir að styrkja verkefnið um það sem óskað er eftir. Bókun fundar Afgreiðsla 838. fundar byggðarráðs staðfest á 374. fundi sveitarstjórnar 18. október 2018 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 838 Lagt fram til kynningar bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett 18. september 2018 varðandi fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 2018 sem haldin verður dagana 11. og 12. október 2018. Bókun fundar Afgreiðsla 838. fundar byggðarráðs staðfest á 374. fundi sveitarstjórnar 18. október 2018 með níu atkvæðum.