Byggðarráð Skagafjarðar - 842
Málsnúmer 1810023F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 375. fundur - 14.11.2018
Fundargerð 842. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 375. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Gísli Sigurðsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 842 Lögð fram afskriftarbeiðni frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra dagsett 18. október 2018 varðandi afskrift á fyrndum þing- og sveitarsjóðsgjöldum að höfuðstólsfjárhæð 598.821 kr. Samtals með dráttarvöxtum 1.100.283 kr.
Byggðarráð samþykkir að afskrifa framangreindar kröfur. Bókun fundar Afgreiðsla 842. fundar byggðarráðs staðfest á 375. fundi sveitarstjórnar 14. nóvember 2018 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 842 Lagðar fram endurskoðaðar reglur um viðveruskráningu starfsmanna sveitarfélagsins í viðverukerfið VinnuStund. Lúta helstu breytingar að lokadagsetningu á skilum á gögnum og staðfestingu þeirra.
Byggðarráð samþykkir framangreindar reglur um viðveruskráningu starfsmanna sveitarfélagsins.
Álfhildur Leifsdóttir óskar bókað að hún leggur áherslu á að skráning á vinnuframlagi kennara verði sérstaklega skoðað í sambandi við viðveruskráningu hvað vinnu eftir viðveru varðar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 9 "Reglur um viðveruskráningar endurskoðun". Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 842 Lögð fram drög að húsnæðisáætlun Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir tímabilið 2018-2026 sem unnin var í samstarfi við VSÓ ráðgjöf.
Byggðarráð samþykkir framlagða húsnæðisáætlun fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð tímabilið 2018-2026 og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 10 "Húsnæðisáætlun Sveitarfélagsins Skagafjarðar". Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 842 Byggðarráð samþykkir að beina því til sveitarstjórnar að framlengja frá og með 1. janúar 2019 samþykkt um tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda af byggingum íbúðarhúsnæðis af hálfu einstaklinga og verktaka á lóðum við þegar tilbúnar götur á Sauðárkróki, Hofsósi og Varmahlíð. Jafnframt beinir byggðarráð því til sveitarstjórnar að veita 50% afslátt af gatnagerðargjöldum af nýjum götum sem verða tilbúnar til úthlutunar á árunum 2018 og 2019.
Ákvæðið vari til 31. desember 2019. Ákvæðið verður ekki afturvirkt og miðað er við að framkvæmdir hefjist innan þessara tímamarka. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 11 "Tillaga - tímabundin lækkun og niðurfelling gatnagerðargjalda 2019". Samþykkt samhljóða. - .5 1810068 Umsögn um tillögu til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2019 - 2023 , 172. mál.Byggðarráð Skagafjarðar - 842 Lagður fram til tölvupóstur dagsettur 12. október 2018 frá nefndasviði Alþingis þar sem umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2019 - 2023 , 172. mál.
Lögð fram drög að umsögn byggðarráðs.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að senda inn umrædd drög að umsögn um tillöguna um samgönguáætlunina. Bókun fundar Afgreiðsla 842. fundar byggðarráðs staðfest á 375. fundi sveitarstjórnar 14. nóvember 2018 með níu atkvæðum.