Byggðarráð Skagafjarðar - 843
Málsnúmer 1810028F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 375. fundur - 14.11.2018
Fundargerð 843. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 375. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Gísli Sigurðsson kynnti fundargerð. Jóhanna Ey Harðardóttir, Bjarni Jónsson, Ólafur Bjarni Haraldsson, Gísli Sigurðsson, Álfhildur Leifsdóttir, Gísli Sigurðsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Bjarni Jónsson, Ólafur Bjarni Harðarson og Gísli Sigurðsson, kvöddu sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 843 Rætt um starfsemi Arion-banka og nýtingu hraðbanka á Hofsósi. Byggðarráð harmar þá ákvörðun Arion-banka að fjarlægja hraðbanka frá Hofsósi enda gegnir hann mikilvægu hlutverki fyrir íbúa og gesti svæðisins, ekki síst eldra fólk, og er eini hraðbankinn í austanverðum í Skagafirði. Byggðarráð samþykkir að óska eftir fundi með forsvarsmönnum bankans til að ræða starfsemi Arion-banka í Skagafirði. Bókun fundar Jóhanna Ey Harðardóttir kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun:
Við fögnum því að hraðbankinn fái áfram að vera á Hofsósi. Okkur finnst einnig mikilvægt að fyrirtæki eins og Arion banki opni augun fyrir því að ekki þurfi að skera niður á landsbyggðinni vegna breytinga í þjónustu við viðskiptavini. Hér í Skagafirði erum við með góða nettengingu ( ljósleiðara ) og einnig teljum við okkur fjölskylduvænt samfélag með mikinn mannauð sem býr yfir þekkingu og reynslu á þessu sviði. Þess vegna teljum við það ekki heppilegt að fækka störfum hér í útibúi Arion banka.
Gísli Sigurðsson lagði til að bókun byggðalistans verði gerð að bókun sveitarstjórnar einnig. Samþykkt samhljóða,.
Afgreiðsla 843. fundar byggðarráðs staðfest á 375. fundi sveitarstjórnar 14. nóvember 2018 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 843 Tekið fyrir erindi frá Guðmundi Hjálmarssyni landeiganda Ánastaða í Skagafirði þar sem hann óskar eftir samþykki Sveitarfélagsins Skagafjarðar, sem leigutaka jarðarinnar Írafells, fyrir frummati smávirkjunar í Svartá.
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkir fyrir sitt leyti að frummatið fari fram enda felist engar framkvæmdir eða fjárhagslegar skuldbindingar í því samþykki. Bókun fundar Afgreiðsla 843. fundar byggðarráðs staðfest á 375. fundi sveitarstjórnar 14. nóvember 2018 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 843 Tekið fyrir erindi frá Högna Elfari Gylfasyni Korná og Indriða Stefánssyni Gilhaga í Skagafirði, þar sem þeir óska eftir samþykki Sveitarfélagsins Skagafjarðar, sem leigutaka jarðarinnar Írafells, fyrir frummati smávirkjunar í annars vegar Korná og hins vegar Gljúfurá.
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkir fyrir sitt leyti að frummatið fari fram enda felist engar framkvæmdir eða fjárhagslegar skuldbindingar í því samþykki. Bókun fundar Afgreiðsla 843. fundar byggðarráðs staðfest á 375. fundi sveitarstjórnar 14. nóvember 2018 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 843 Tekið fyrir erindi frá Þorsteini Valssyni þar sem hann óskar eftir samþykki Sveitarfélagsins Skagafjarðar, sem eins af eigendum jarðarinnar Skarðsár, fyrir frummati smávirkjunar í Skarðsá.
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkir fyrir sitt leyti að frummatið fari fram enda felist engar framkvæmdir eða fjárhagslegar skuldbindingar í því samþykki. Bókun fundar Afgreiðsla 843. fundar byggðarráðs staðfest á 375. fundi sveitarstjórnar 14. nóvember 2018 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 843 Tekin fyrir svohljóðandi tillaga:
Byggðaráð sem jafnframt er stjórn eignasjóðs, samþykkir að fara ásamt starfsmönnum eignasjóðs í kynnisferð um sveitarfélagið til að kynna sér ástand og viðhaldsþörf húseigna og aðstöðu stofnanna sveitarfélagsins. Verði það gert sem liður í undirbúningi fjárhagsáætlunar og mati og ákvarðanatöku um viðhaldsþörf og endurbætur á húseignum og aðstöðu stofnanna sveitarfélagsins.
Bjarni Jónsson, VG og óháð
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra veitu- og framkvæmdarsviðs að koma með tillögu að nánari útfærslu á slíkri ferð ásamt tímasetningu.
Bókun fundar Afgreiðsla 843. fundar byggðarráðs staðfest á 375. fundi sveitarstjórnar 14. nóvember 2018 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 843 Tekin fyrir svohljóðandi tillaga vegna upplýsingamiðstöðva í Skagafirði:
Lagt er til að auglýst verði eftir rekstraraðilum að upplýsingamiðstöðvum um allan Skagafjörð með það að markmiði að ná fram hagræðingu og aukinni þjónustu við upplýsingagjöf til ferðamanna. Mikilvægt er að sveitarfélagið geti með sem markvissasta og hagkvæmasta hætti veitt ferðamönnum þjónustu og stuðlað að fjölgun þeirra í héraði.
Bjarni Jónsson, VG og óháð
Meirihluti byggðarráðs óskar bókað:
Meirihluti byggðarráðs er sammála um að núverandi fyrirkomulag á upplýsingamiðstöðvum í sveitarfélaginu hafi reynst vel þar sem Alþýðulist hefur sinnt hlutverkinu í Varmahlíð og sveitarfélagið sjálf sinnti þessu á Sauðárkróki í fjölda ára en Puffin and friends síðustu tvö ár. Meirihluti byggðarráðs leggst því gegn þeirri tillögu að bjóða rekstur upplýsingamiðstöðva út að svo stöddu.
Álfhildur Leifsdóttir óskar bókað:
Í ljósi þeirra samninga sem gerðir hafa verið við einkaaðila um rekstur upplýsingamiðstöðva að undanförnum árum er synd að þessari tillögu sé hafnað. Að auglýst sé eftir rekstraraðilum stuðlar bæði að hagkvæmni í rekstri sem og betri verkferlum og gegnsæi í starfsemi sveitarfélagsins hvað þetta varðar.
Sveinn Finster Úlfarsson áheyrnarfulltrúi Byggðalistans óskar bókað:
Tillaga þessi að bjóða út upplýsingamiðstöðvar er ekki best fyrir sveitarfélagið. Þetta er best gert með samningum eins og gert hefur verið í Varmahlíð við Alþýðulist og við Puffin and friends á Sauðárkróki.
Bókun fundar Bjarni Jónsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
Það að auglýsa eftir áhugasömum aðilum sem vilja hafa með höndum rekstur upplýsingamiðstöðva fyrir sveitarfélagið í Skagafirði, felur ekki endilega í sér útboð, heldur er áhugasömum og hæfum aðilum gefið tækifæri til að leggja fram hugmyndir sínar um framkvæmd og rekstrarforsendur. Sveitarfélagið getur svo samið við þá aðila sem hagfelldast er hverju sinni með tilliti til þess hvernig þjónustu það vill veita og kosta til hennar. Því veldur afgreiðsla tillögunnar vonbrigðum. Ástæða er til að lýsa ánægju með hversu vel Alþýðulist hefur sinnt hlutverkinu í Varmahlíð og Puffin and friends síðustu tvö ár á Sauðárkróki.
Bjarn Jónsson, VG og óháðum
Bjarni Jónsson lagði einnig fram eftirfarandi tilllögu:
Í ljósi þess að núverandi fyrirkomulag á upplýsingamiðstöðvum fyrir ferðamenn í sveitarfélaginu hefur reynst vel, þar sem Alþýðulist hefur sinnt hlutverkinu í Varmahlíð og Puffin and friends síðustu tvö ár á Sauðárkróki, samþykkir Sveitarstjórn Skagafjarðar að gengið verði til samninga við Alþýðulist um rekstur upplýsingamiðstöðvar fyrir ferðamenn í Varmahlíð og við Puffin and friends um upplýsingagjöf til ferðamanna á Sauðárkróki, á árinu 2019.
Bjarni Jónsson
Álfhildur Leifsdóttir
VG og óháðum
Gísli Sigurðsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
Meirihluti Sveitarstjórnar Skagafjarðar er þeirrar skoðunar að þar sem Sveitarfélagið Skagafjörður stendur ekki sjálft að rekstri upplýsingamiðstöðva þá sé ekki sjálfgefið að rekstur slíkrar starfsemi verði boðinn út. Meirihluti sveitarstjórnar vill að inn í forsendur mögulegra samninga við aðra aðila verðir m.a. tekin inn sjónarmið um möguleg samlegðaráhrif, framlög frá Ferðamálastofu inn í landshlutamiðstöð um upplýsingamiðstöð ferðamanna á Norðurlandi vestra o.fl. Þegar slíkar forsendur liggja fyrir er hægt að taka afstöðu til mögulegra samninga við einstaka aðila.
Tillagan VG og óháðra, borin upp til afgreiðslu og felld með fimm atkvæðum gegn tveimur. Ólafur Bjarni Haraldsson og Jóhanna Ey Harðardóttir óska bókað að þau sitji hjá.
Ólafur Bjarni Haraldsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun. Byggðalistinn situr hjá við afgreiðslu málsins þar sem forsendur samninga hafa ekki verið kynnt okkur, og getum því ekki tekið upplýsta ákvörðun að svo stöddu.
Bjarni Jónsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
Við lýsum vonbrigðum með afgreiðslu tillögunnar í ljósi góðra undirtekta við efni hennar.
Bjarni Jónsson
Álfhildur Leifsdóttir
VG og óháðum
Gísli Sigurðsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
Meirihluti Sveitarstjórnar er sammála um að núverandi fyrirkomulag á upplýsingamiðstöðvum í sveitarfélaginu hafi reynst vel þar sem Alþýðulist hefur sinnt hlutverkinu í Varmahlíð og sveitarfélagið sjálf sinnti þessu á Sauðárkróki í fjölda ára en Puffin and friends síðustu tvö ár og hafa staðið sig vel.
Afgreiðsla 843. fundar byggðarráðs staðfest á 375. fundi sveitarstjórnar 14. nóvember 2018 með sjö atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 843 Lagt fram bréf frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands þar sem tilkynnt er um ágóðahlutagreiðslu til Sveitarfélagsins Skagafjarðar á árinu 2018 að upphæð kr. 1.678.000,- Bókun fundar Afgreiðsla 843. fundar byggðarráðs staðfest á 375. fundi sveitarstjórnar 14. nóvember 2018 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 843 Lögð fram ósk frá Ungmenna- og íþróttafélaginu Smára þar sem óskað er eftir styrk til kaupa á búnaði í íþróttahúsið í Varmahlíð.
Byggðarráð þakkar fyrir erindið og beinir því til frístundastjóra að skoða búnað í íþróttahúsinu í Varmahlíð sem í kjölfarið yrði til grundvallar ákvörðunar hjá samstarfsnefnd sveitarfélaganna tveggja í Skagafirði um endurnýjun búnaðar þar. Bókun fundar Afgreiðsla 843. fundar byggðarráðs staðfest á 375. fundi sveitarstjórnar 14. nóvember 2018 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 843 Lagt fram til kynningar frumvarp frá Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, til laga um skráningu og mat fasteigna. Bókun fundar Afgreiðsla 843. fundar byggðarráðs staðfest á 375. fundi sveitarstjórnar 14. nóvember 2018 með níu atkvæðum.