Lagðar voru fram teikningar af fyrirhuguðum breytingum á opnu svæði á milli Hólmagrundar og Hólavegs á Sauðárkróki. Teikningarnar eru unnar af Arnari Birgi Ólafssyni á Teiknistofu Norðurlands. Á svæðinu er gert ráð fyrir malbikuðum göngustíg, bekkjum, trjágróðri og lágum jarðvegsmönum. Umhverfis- og samgöngunefnd felur sviðsstjóra í samvinnu við garðyrkjustjóra að vinna að jarðvegsvinnu og landmótunar á svæðinu á þessu ári og samþykkir að vísa frágangi á svæðinu til fjárhagsáætlunar næsta árs.
Á svæðinu er gert ráð fyrir malbikuðum göngustíg, bekkjum, trjágróðri og lágum jarðvegsmönum.
Umhverfis- og samgöngunefnd felur sviðsstjóra í samvinnu við garðyrkjustjóra að vinna að jarðvegsvinnu og landmótunar á svæðinu á þessu ári og samþykkir að vísa frágangi á svæðinu til fjárhagsáætlunar næsta árs.