Byggðarráð Skagafjarðar - 848
Málsnúmer 1812002F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 376. fundur - 12.12.2018
Fundargerð 848. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 376. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 848 Unnið með fjárhagsáætlun 2019-2023.
Á fund byggðarráðs komu Dagur Þór Baldvinsson yfirhafnarvörður og Indriði Þór Einarsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs og fóru yfir fjárhagsáætlun Skagafjarðarhafna. Dagur vék af fundi kl. 08:45. Indriði fór yfir verkefnalista varðandi meiriháttar viðhald eignasjóðs og fjárfestingar ársins 2019. Indriði vék af fundi kl. 09:50.
Margeir Friðriksson fór yfir áætlanir eignasjóðs, félagsíbúða og Tímatákns ehf. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 39 "Fjárhagsáætlun 2019-2023" Samþykkt samhljóða.