Einimelur 2a-b-c-d-e-f - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis
Málsnúmer 1902146
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 83. fundur - 08.04.2019
Lagður fram tölvupóstur dagsettur 19. febrúar 2019 úr máli 1902281 hjá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra. Óskað er umsagnar um umsókn Magnúsar Sigmundssonar f.h. Hestasport-Ævintýraferða ehf., kt. 500594-2769, um leyfi til að reka gististaði í flokki II í frístundahúsum að Einimel 2a-f. Fasteignanúmer F2262069, F2262070, F2262071, F2273621, F2273623 og F2273624. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.