Ísland ljóstengt 2019 - útboðsverk
Málsnúmer 1904027
Vakta málsnúmerVeitunefnd Svf Skagafjarðar - 58. fundur - 03.04.2019
Farið var yfir stöðu ljósleiðaravæðingar og nýtingu á styrkjum á vegum fjarskiptasjóðs vegna Ísland ljóstengt.
Veitunefnd Svf Skagafjarðar - 59. fundur - 26.04.2019
Skoðaðar voru teikningar af fyrirhuguðum framkvæmdum á vegum RARIK í Skagafirði m.t.t. samlegðaráhrifa vegna ljósleiðaravæðingar.
Veitunefnd Svf Skagafjarðar - 61. fundur - 12.08.2019
Farið var yfir kostnað vegna lagningu ljósleiðara frá Ásgarði að Vatnsleysu samhliða lagningu rafstrengs um hluta svæðisins.
Sviðstjóra falið að halda áfam viðræðum við verktaka um lagningu ljósleiðara með rafstreng.
Sviðstjóra falið að halda áfam viðræðum við verktaka um lagningu ljósleiðara með rafstreng.
Veitunefnd Svf Skagafjarðar - 62. fundur - 25.09.2019
Farið var yfir stöðu lagningu ljósleiðara samhliða rafstrengs RARIK á svæðinu frá Ásgarði að Vatnsleysu. Lagningu stofnstrengs samhliða rafstreng er lokið og unnið er að lagningu heimtauga.