Tjaldsvæðið í Varmahlíð
Málsnúmer 1904054
Vakta málsnúmerStjórn Menningarseturs Skagfirðinga - 3. fundur - 10.11.2016
Tekið fyrir tölvubréf frá Sigfúsi Inga Sigfússyni frá 9. nóvember 2016. Í bréfinu kemur fram að samningur rekstraraðila um rekstur tjaldsvæðsisins í Varmahlíð er runnið út. Fyrir liggur áhugi á stækkun lóðar undir tjaldsvæði í tengslum við endurnýjun samnings um rekstur.Samþykkt að hanna skipulagsuppdrætti sem voru unnir en ekki samþykktir á sínum tíma og vinna tillögu með tilliti til þeirra.