Fara í efni

Aðalgata 21 - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 1905058

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 88. fundur - 12.06.2019

Lagður fram tölvupóstur úr máli 1905130 hjá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra, dagsettur 8. maí 2019. Óskað er umsagnar um umsókn Áskells Heiðars Ásgeirssonar kt. 290473-4039, f.h. Sýndarveruleika ehf. kt.470218-0370. Sótt er um leyfi til að reka veitingastað í flokki III að Aðalgötu 21 á Sauðárkróki „Grána Bístró“. Fasteignanúmer 213-1145. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 870. fundur - 12.06.2019

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 8. maí 2019, úr máli 1905130 hjá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra. Óskað er umsagnar um umsókn Áskels Heiðars Ásgeirssonar, f.h. Sýndarveruleika ehf, kt.470218-0370, um leyfi til að reka veitingastað í flokki III að Aðalgötu 21, 550 Sauðárkróki. Afgreiðslutími áfengis (ef við á) til kl:01:00 alla daga.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.