Fara í efni

Tilkynning um fyrirhugaðar niðurfellingar af vegaskrá(7853-01, 7889-01, 7858-01, 7456-01)

Málsnúmer 1909199

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd Svf Skagafjarðar - 160. fundur - 02.10.2019

Lagðar voru fyrir fundinn tilkynningar frá Vegagerðinni um niðurfellingu vega af vegaskrá. Ábyrgð Vegagerðarinnar á viðhaldi og þjónustu vega fellur niður á þeim vegum sem falla út af vegaskrá.
Tilkynnt er um niðurfellingu eftirfarandi vega;
Reykjarhólsvegur í Fljótum, 7853-01
Reykjarhólsvegur í Fljótum, 7889-01
Ysta-Mósvegur í Fljótum, 7858-01
Lágmúlavegur á Skaga, 7456-01

Nefndin felur sviðstjóra að kanna ástæður þess að Reykjarhólsvegur 7853-01 sé felldur út af vegaskrá.