Byggðarráð Skagafjarðar - 890
Málsnúmer 1911024F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 391. fundur - 12.12.2019
Fundargerð 890. fundar byggðarráðs frá 27. nóvember 2019 lögð fram til afgreiðslu á 391. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Álfhildur Leifsdóttir kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 890 Sjá trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 890. fundar byggðarráðs staðfest á 391. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2019 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 890 Lagður fram kaupsamningur þar sem Nýprenti ehf. eru seld hlutabréf sveitarfélagsins í Feyki ehf., kt. 580383-0179, að nafnverði 36.750 kr. á 1 kr.
Byggðarráð samþykkir kaupsamninginn. Bókun fundar Afgreiðsla 890. fundar byggðarráðs staðfest á 391. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2019 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 890 Lagðar fram fyrirspurnir frá Álfhildi Leifsdóttur um húsaleigu vegna fasteignarinnar Borgarflöt 27 (RKS hús), dagsettar 17. nóvember 2019. Auk þess er einnig spurt um aðra húsnæðisaðstöðu sem sveitarfélagið og stofnanir þess hafa á leigu.
Lögð fram svör við fyrirspurnunum og byggðarráð samþykkir að spurningar og svör verði birt á heimasíðu sveitarfélagsins.
Byggðarráð bókar að það sé orðið tímabært að finna þjónustumiðstöð eignasjóðs og Skagafjarðarveitum varanlegt framtíðarhúsnæði á einum stað, sem er hentugt og hagkvæmt fyrir starfsmenn og starfsemina. Bókun fundar Álfhildur Leifsdóttir óskar bókað: Mikilvægt er að vera vakandi fyrir langtíma útgjöldum sveitarfélagsins og er því jákvætt að Byggðarráð telji tímabært að finna hentugra framtíðarhúsnæði í ljósi hárrar leigu um árabil af húsnæði Borgarflatar 27 í kjölfar þessarar fyrirspurnar.
Álfhildur Leifsdóttir og Bjarni Jónsson fulltrúar VG og óháðra
Afgreiðsla 890. fundar byggðarráðs staðfest á 391. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2019 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 890 Byggðarráð samþykkir að beina því til sveitarstjórnar að framlengja frá og með 1. janúar 2020 samþykkt um tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda af byggingum íbúðarhúsnæðis af hálfu einstaklinga og verktaka á lóðum við þegar tilbúnar götur á Sauðárkróki, Hofsósi, Varmahlíð og Steinsstöðum. Verði það gert á grundvelli sérstakrar lækkunarheimildar sem hægt er að veita skv. 6. gr. laga um gatnagerðargjöld nr. 153/2006. Lóðir sem niðurfellingin gildir um verði tilgreindar á sérstakan hátt á yfirlitskortum yfir lausar lóðir á heimasíðu sveitarfélagsins. Ofangreind samþykkt um niðurfellingu gatnagerðargjalda gildir um lóðir sem voru byggingarhæfar 1. janúar 2019.
Jafnframt beinir byggðarráð því til sveitarstjórnar að veita 50% afslátt af gatnagerðargjöldum af lóðum við nýjar götur sem verða byggingarhæfar og tilbúnar til úthlutunar á árunum 2019 og 2020.
Ákvæðið vari til 31. desember 2020. Ákvæðið verður ekki afturvirkt og miðað er við að byggingarleyfi hafi verið veitt innan þessara tímamarka. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 27 "Gjaldskrá fyrir gatnag.gjöld, stofngj.fráveitu og fl. 2020". Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 890 Lagður fram viðauki númer 8 við fjárhagsáætlun árins 2019. Gengur viðaukinn m. a. út á hækkun rekstrarkostnaðar vegna kaupa á tölvubúnaði fyrir ýmsar starfsstöðvar sveitarfélagsins að fjárhæð 6.468.000 kr. Á móti eru aðrir rekstrarliðir lækkaðir. Einnig eru í viðaukanum fjármunir færðir á milli rekstrareininga. Í rekstrarreikningi eru áhrif þessa hluta viðaukans engin.
Í eignasjóði er fjármagnskostnaður lækkaður um 6.500.000 kr. og fjármagnið flutt á fjárfestingalið.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi viðauka og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 34 "Viðauki 8 við fjárhagsáætlun 2019-2023". Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 890 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 18. nóvember 2019 þar sem forsætisráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 284/2019, "Drög að frumvarpi til laga um varnir gegn hagsmunaárekstrum hjá æðstu handhöfum framkvæmdarvalds í Stjórnarráði Íslands". Umsagnarfrestur er til og með 02.12.2019. Bókun fundar Afgreiðsla 890. fundar byggðarráðs staðfest á 391. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2019 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 890 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 20. nóvember 2019 þar sem umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 290/2019, "Frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð". Umsagnarfrestur er til og með 04.12.2019.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að ítreka síðustu afgreiðslu byggðarráðs varðandi Hálendisþjóðgarð. Bókun fundar Afgreiðsla 890. fundar byggðarráðs staðfest á 391. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2019 með níu atkvæðum.