Landbúnaðarnefnd - 208
Málsnúmer 1911028F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 391. fundur - 12.12.2019
Fundargerð 208. fundar landbúnaðarnefndar frá 29. nóvember 2019 lögð fram til afgreiðslu á 391. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Landbúnaðarnefnd - 208 Lilja Ólafsdóttir yfirmarkavörður Skagafjarðar og Þorkell Gíslason fulltrúi Akrahrepps mættu á fund landbúnaðarnefndar til viðræðu um útgáfu nýrrar og uppfærðrar markaskrár fyrir Skagafjörð á árinu 2020. Fjallskilastjórum er falin söfnun skráninga í skrána og á henni að ljúka fyrir 20. desember 2019.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að greiðsla fyrir skráningu hvers eyrnamarks verði 3.000 kr. Ekki er greitt fyrir frostmerki ef viðkomandi á eyrnamark í skránni, annars er greitt fullt gjald fyrir frostmerki. Innheimta verður á vegum sveitarfélaganna. Bókun fundar Afgreiðsla 208. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 391. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2019 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðarnefnd - 208 Lagt fram bréf dagsett 6. nóvember 2019 frá Landgræðslu ríkisins þar sem óskað er eftir styrk til samstarfsverkefnisins "Bændur græða landið" vegna ársins 2019.
Landbúnaðarnefnd þakkar erindið en getur ekki orðið við því að styrkja verkefnið. Bókun fundar Afgreiðsla 208. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 391. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2019 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðarnefnd - 208 Rætt um beitarlönd í og við Hofsós og svo einnig hólfabeit í bæjarlandi Hofsóss.
Landbúnaðarnefnd leggur áherslu á að aðilar sem eru með beitarlönd og hólfabeit á svæðinu gæti þess að girðingar séu í lagi, umhirða góð og beitarálag sé hóflegt. Nefndin samþykkir að starfsmaður nefndarinnar fylgist með hólfabeitinni og hafi heimild til að vísa viðkomandi af svæðinu ef landnotkun er ekki ásættanleg. Bókun fundar Afgreiðsla 208. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 391. fundi sveitarstjórnar 11. desember 2019 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðarnefnd - 208 Framlögum úthlutað til fjallskilasjóða vegna ársins 2020, samtals 5 milljónum króna.
Starfsmanni landbúnaðarnefndar falið að tilkynna fjallskilanefndum um úthlutun til viðkomandi fjallskilasjóðs. Landbúnaðarnefnd áréttar að framlag til fjallskilasjóðs vegna ársins 2020, verði ekki greitt fyrr en að búið sé að skila ársreikningi fyrir árið 2019. Bókun fundar Afgreiðsla 208. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 391. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2019 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðarnefnd - 208 Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Austur-Fljóta fyrir árið 2018. Bókun fundar Afgreiðsla 208. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 391. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2019 með níu atkvæðum.