Skólamáltíðir fyrir leik- og grunnskóla
Málsnúmer 2001076
Vakta málsnúmerFræðslunefnd Svf. Skagafjarðar - 152. fundur - 30.01.2020
Lagður fram tölvupóstur frá Spíru ehf, Tómasi H. Árdal, þar sem lýst er vilja til að þjónusta Sveitarfélagið Skagafjörð um skólamáltíðir bæði fyrir grunnskóla og leikskóla. Fræðslunefnd þakkar erindið og vísar í ákvörðun í lið 1 hér að framan um að bjóða framleiðslu hádegisverðar fyrir Ársali og Árskóla út til þriggja ára.