Aðalgata 16 - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis
Málsnúmer 2001159
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 99. fundur - 24.01.2020
Lagður fram tölvupóstur dagsettur 16. janúar 2020, úr máli 2001213 hjá sýslumannsembætti Norðurlands vestra. Tómas Árdal f.h. Stá ehf., kt.520997-2029, sækir um leyfi til að reka veitingastaðinn KK restaurant í flokki III að Aðalgötu 16, Sauðárkróki. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.