Fundartími í Ársölum
Málsnúmer 2006083
Vakta málsnúmerFræðslunefnd Svf. Skagafjarðar - 159. fundur - 16.09.2020
Í leikskólanum Ársölum eru haldnir átta starfsmannafundir yfir árið. Á fundum þessum er starfið með börnunum skipulagt og unnið að faglegum málefnum leikskólans. Fundir þessir hafa verið haldnir á mismunandi tímum í gegnum tíðina, ýmist utan daglegs vinnutíma eða á vinnutíma. Eðli málsins samkvæmt hentar það starfsfólki misvel að mæta á starfsmannafundi að hefðbundnum vinnutíma loknum og því hefur mæting á þá verið dræm. Í ljósi þessa er lagt til að skólaárið 2020-2021 verði fjórir fundir haldnir á dagvinnutíma og fjórir fundir haldnir utan dagvinnutíma. Ákvörðun þessi verður endurmetin við gerð skóladagatals skólaárið 2021-2022.