Varmahlíð Skólavegur, plan við sundlaug og Birkimelur gatnaframkvæmdir 2020
Málsnúmer 2007077
Vakta málsnúmerUmhverfis- og samgöngunefnd Svf Skagafjarðar - 171. fundur - 02.09.2020
Sviðsstjóri kynnti stöðu verksins. Verkið er hafið í samræmi við samþykkta verkáætlun verktaka og er verkið á áætlun. Vinnusvæði verktaka er eini vegurinn að skólanum og mun vegurinn verða torfær á meðan á verkinu stendur. Sviðsstjóri hefur haldið kynningarfundi með verktaka, skólastjóra, bílstjórum og kennurum Varmahlíðarskóla og farið yfir verklag, skipulag og öryggismál.