Byggðarráð Skagafjarðar - 932
Málsnúmer 2009016F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 403. fundur - 21.10.2020
Fundargerð 932. fundar byggðarráðs frá 23. september 2020 lögð fram til afgreiðslu á 402. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson, með leyfi varaforseta kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 932 Sigfús Ólafur Guðmundsson verkefnastjóri kom á fundinn til viðræðu varðandi aðgerðir til eflingar nýsköpunar í Skagafirði.
Byggðarráð samþykkir að fela Sigfúsi Ólafi að vinna áfram að verkefninu í samræmi við umræður á fundinum. Bókun fundar Afgreiðsla 932. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 21. október 2020 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 932 Lagt fram bréf dagsett 7. september 2020 frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Óskað er eftir tilnefningu fulltrúa fyrir hönd Sveitarfélagsins Skagafjarðar í starfshóp, sem verði fulltrúa landshlutans í stafrænu ráði sveitarfélaga til stuðnings við miðlun upplýsinga til sveitarfélaganna á starfssvæðinu.
Byggðarráð samþykkir að tilnefna Sigfús Ólaf Guðmundsson í starfshópinn. Bókun fundar Afgreiðsla 932. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 21. október 2020 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 932 Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dagsettur 11. september 2020 varðandi skýrslu kjaratölfræðinefndar, nýs samstarfsvettvangs um gerð og hagnýtingu tölfræðigagna um laun og efnahag. Bókun fundar Afgreiðsla 932. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 21. október 2020 með níu atkvæðum.