Opnunartímar íþróttamannvirkja 2021
Málsnúmer 2010189
Vakta málsnúmerFélags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar - 282. fundur - 05.11.2020
Lögð er fram tillaga að opnunartíma íþróttamannvirkja í sveitarfélaginu fyrir árið 2021. Tillagan er samþykkt. Opnunartími verður auglýstur á heimasíðu sveitarfélagsins.
Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar - 290. fundur - 04.06.2021
Tekin fyrir beiðni frá Sótahnjúk ehf, rekstraraðila sundlaugarinnar á Sólgörðum, um breytingu á samþykktum opnunartíma laugarinnar fyrir sumarið 2021. Nefndin samþykkir framlagða beiðni. Sumarið 2021 verður laugin opin á mánudögum en lokuð á þriðjudögum.