Byggðarráð Skagafjarðar - 944
Málsnúmer 2012006F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 405. fundur - 16.12.2020
Fundargerð 944. fundar byggðarráðs frá 10. desember 2020 lögð fram til afgreiðslu á 405. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefásson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Farið yfir fjárhagsáætlun 2021. Kynningar nefnda fóru fram í gegnum fjarfundarbúnað.
Klukkan 9:00 var farið yfir málaflokka 05-Menningarmál og 13-Atvinnumál. Þátt tóku Gunnsteinn Björnsson formaður atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar, Sigfús Ólafur Guðmundsson verkefnastjóri og Álfhildur Leifsdóttir sveitarstjórnarfulltrúi.
Klukkan 9:45 voru málaflokkar 02-Félagsmál og 06-Æskulýðs- og íþróttamál teknir fyrir. Þátt tóku Guðný Axelsdóttir formaður félags- og tómstundanefndar, Atli Már Traustason varaformaður félags- og tómstundanefndar, Anna Lilja Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi í félags- og tómstundanefnd, Álfhildur Leifsdóttir sveitarstjórnarfulltrúi, Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir félagsmálastjóri, Þorvaldur Gröndal frístundastjóri og Erla Hrund Þórarinsdóttir sérfræðingur á fjölskyldusviði.
Klukkan 10:15 var málaflokkur 09-Skipulags- og byggingarmál á dagskrá. Þátt tóku nefndarmenn skipulags- og byggingarnefndar; Einar E. Einarsson formaður, Regína Valdimarsdóttir varaformaður og Álfhildur Leifdóttir. Einnig Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi og Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi.
Klukkan 10:45 var málaflokkur 04-Fræðslumál tekinn fyrir. Þátt tóku Axel Kárason formaður fræðslunefndar, Steinunn Rósa Guðmundsdóttir varafulltrúi í fræðslunefnd og Álfhildur Leifsdóttir sveitarstjórnarfulltrúi. Einnig Herdís Á. Sæmundardóttir sviðstjóri fjölskyldusviðs, Selma Barðdal Reynisdóttir fræðslustjóri og Erla Hrund Þórarinsdóttir sérfræðingur á fjölskyldusviði.
Klukkan 11:30 var málaflokkur 13-Landbúnaðarmál á dagskrá. Þátt tóku Jóhannes H. Ríkharðsson formaður landbúnaðarnefndar, Jóel Þór Árnason varaformaður, Arnór Gunnarsson þjónustufulltrúi og Álfhildur Leifsdóttir sveitarstjórnarfulltrúi.
Klukkan 11:45 voru eftirtaldir málaflokkar teknir fyrir 00-Skatttekjur, 03-Heilbrigðismál, 21-Sameiginlegur kostnaður og 22-Lífeyrisskuldbindingar. Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs kynnti áætlanirnar.
Byggðarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun 2021-2024 með áorðnum breytingum til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins "Fjárhagsáætlun 2021 - 2024" Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Lögð fram afskriftarbeiðni nr.202011301054051 vegna fyrndra sveitarsjóðsgjalda, dagsett 30. nóvember 2020, frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra. Höfuðstólsfjárhæð er 803.074 kr. Samtals 1.210.551 kr. með dráttarvöxtum.
Byggðarráð samþykkir að afskrifa framangreind gjöld. Bókun fundar Afgreiðsla 944. fundar byggðarráðs staðfest á 405. fundi sveitarstjórnar 16. desember 2020 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Lögð fram bókun 163. fundar fræðslunefndar. "Fræðslunefnd leggur til við byggðarráð að samþykkt verði að fella niður gjöld í frístund í grunnskólum Skagafjarðar vegna barna sem voru heima á tímabilinu 3. nóvember til 18. nóvember s.l. vegna takmarkana af völdum Covid. Upphæðin nemur allt að 200.000 krónum í heildina."
Byggðarráð samþykkir tillöguna og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins "Frístund - niðurfelling gjalda vegna Covid -19" Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Lagður fram viðauki númer 10 við fjárhagsáætlun 2020. Viðauki þessi er gerður vegna aukinna tekna vegna Förgu í Varmahlíð og lækkunar framkvæmdakostnaðar. Einnig er gert ráð fyrir stofnframlögum vegna bygginga átta íbúða við Laugatún 21-27 og átta íbúða á Freyjugötureit. Áætluð skuldbreyting langtímalána er allt að 418 mkr. Gerð er breyting á áætlun ársins vegna kaupa á fasteignum Varmahlíðarstjórnar og skilyrtri afhendingu Varmahlíðarstjórnar á öllum fjármunum stofnunarinnar til sveitarfélagsins. Einnig gerir viðaukinn ráð fyrir breytingu á langtímakröfum, viðskiptakröfum og -skuldum.
Þessar breytingar leiða til hækkunar á handbæru fé um rúmar 63 milljónir króna.
Byggðarráð samþykkir framlagðan viðauka og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins "Viðauki 10 við fjárhagsáætlun 2020" Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 7. desember 2020 frá Jóni Geirmundssyni, þar sem hann sækir um lóð númer 26 á Nöfum.
Byggðarráð samþykkir að leigja Jóni Geirmundssyni lóð númer 26 á Nöfum og felur sveitarstjóra að sjá um að gera leigusamning þar um.
Bókun fundar Afgreiðsla 944. fundar byggðarráðs staðfest á 405. fundi sveitarstjórnar 16. desember 2020 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 4. desember 2020 þar sem boðað er til aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Nlv. sem haldinn verður með fjarfundarsniði, kl. 13, þann 18. desember 2020. Bókun fundar Afgreiðsla 944. fundar byggðarráðs staðfest á 405. fundi sveitarstjórnar 16. desember 2020 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Byggðarráð samþykkir að beina því til sveitarstjórnar að framlengja frá og með 1. janúar 2021 samþykkt um tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda af byggingum íbúðarhúsnæðis af hálfu einstaklinga og verktaka á lóðum við þegar tilbúnar götur á Sauðárkróki, Hofsósi, Varmahlíð og Steinsstöðum. Verði það gert á grundvelli sérstakrar lækkunarheimildar sem hægt er að veita skv. 6. gr. laga um gatnagerðargjöld nr. 153/2006. Lóðir sem niðurfellingin gildir um verði tilgreindar á sérstakan hátt á yfirlitskortum yfir lausar lóðir á heimasíðu sveitarfélagsins. Ofangreind samþykkt um niðurfellingu gatnagerðargjalda gildir um lóðir sem voru byggingarhæfar fyrir 1. janúar 2019.
Jafnframt beinir byggðarráð því til sveitarstjórnar að veita 50% afslátt af gatnagerðargjöldum af lóðum við nýjar götur sem voru byggingarhæfar og tilbúnar til úthlutunar á árunum 2019 og 2020.
Lóðir við nýjar götur sem verða byggingarhæfar og tilbúnar til úthlutunar eftir 1. janúar 2021 munu bera full gatnagerðargjöld.
Ákvæðið vari til 31. desember 2021. Ákvæðið verður ekki afturvirkt og miðað er við að byggingarleyfi hafi verið veitt innan þessara tímamarka. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins "Gjaldskrá fyrir gatnag.gjöld, stofngj.fráveitu og fl. 2021" Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Lögð fram gjaldskrá leikskóla sveitarfélagsins fyrir árið 2021.
Byggðarráð samþykkir með tveimur atkvæðum Gísla Sigurðssonar og Stefáns Vagns Stefánssonar framlagða gjaldskrá og vísar til afgeiðslu sveitarstjórnar.
Ólafur Bjarni Haraldsson og Bjarni Jónsson óska bókað að þeir sitja hjá við afgreiðslu málsins og munu sitja hjá við afgreiðslu þess í sveitarstjórn. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins "Gjaldskrá Leikskóla 04 2021" Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Lögð fram gjaldskrá grunnskóla sveitarfélagsins fyrir árið 2021.
Byggðarráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar til afgeiðslu sveitarstjórnar.
Bjarni Jónsson óskar bókað að hann situr hjá við afgreiðslu málsins og munu sitja hjá við afgreiðslu þess í sveitarstjórn. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins "Gjaldskrá Grunnskóla 04 2021" Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Lögð fram gjaldskrá Tónlistarskóla Skagafjarðar fyrir árið 2021.
Byggðarráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar til afgeiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins "Gjaldskrá í Tónlistarskóla Skagafjarðar 04 2021" Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Lögð fram gjaldskrá heimaþjónustu fyrir árið 2021.
Byggðarráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar til afgeiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins "Gjaldskrá heimaþjónustu 2021" Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Umhverfis- og samgöngunefnd lagði til við byggðarráð að gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald hækki um 2,5% frá og með 1. janúar 2021.
Byggðarráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins "Gjaldskrá hunda- og kattahald 2021" Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við byggðarráð að hækka gjaldskrá Skagafjarðarhafna um 2,5% fyrir árið 2021.
Byggðarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins "Gjaldskrá Skagafjarðarhafna 2021" Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Umhverfis- og samgöngunefnd bókaði svo á 174. fundi sínum:
"Lagt er til að gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpurðunar hækki um 15% frá og með 1. janúar 2021.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillöguna og vísar henni til Byggðarráðs.
Byggðarráð samþykkir að hækka gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpurðun um 10% frá og með 1. janúar. 2021 og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Jafnframt samþykkir byggðarráð að endurskoða gjaldskrána á árinu 2021 í kjölfar væntanlegs útboðs á sorphirðu.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins "Gjaldskrá sorphirðu og sorpurðunar 2021" Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Umhverfis- og samgöngunefnd bókaði svo á 174. fundi sínum:
"Lagðar er til breytingar á gjaldskrá tæmingu rotþróa sem munu taka gildi 1. janúar 2021. Hækkun gjalds fyrir tæmingu rotþróa endurspeglar raunkosnað á tæmingum undanfarin ár.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillöguna og vísar henni til Byggðarráðs."
Byggðarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins "Gjaldskrá fráveitu og tæmingu rotþróa 2021" Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Lögð fram gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu, stofnun lóða, byggingarreita og útgáfu framkvæmdaleyfa í Sveitarfélaginu Skagafirði fyrir árið 2021.
Byggðarráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins "Gjaldskrá skipulagsfulltrúa 2021" Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Lögð fram fjárhagsáætlun málaflokks 08-Hreinlætismál. Bókun fundar Afgreiðsla 944. fundar byggðarráðs staðfest á 405. fundi sveitarstjórnar 16. desember 2020 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Lögð fram fjárhagsáætlun málaflokks 10-Umferða- og samgöngumál. Bókun fundar Afgreiðsla 944. fundar byggðarráðs staðfest á 405. fundi sveitarstjórnar 16. desember 2020 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Lögð fram fjárhagsáætlun málaflokks 11-Umhverfismál. Bókun fundar Afgreiðsla 944. fundar byggðarráðs staðfest á 405. fundi sveitarstjórnar 16. desember 2020 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Lögð fram fjárhagsáætlun málaflokks 61-Hafnarsjóðs Skagafjarðar. Bókun fundar Afgreiðsla 944. fundar byggðarráðs staðfest á 405. fundi sveitarstjórnar 16. desember 2020 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Lögð fram fjárhagsáætlun málaflokks 69-Fráveita. Bókun fundar Afgreiðsla 944. fundar byggðarráðs staðfest á 405. fundi sveitarstjórnar 16. desember 2020 með níu atkvæðum.
- .22 1909015 Samningur milli Akrahrepps og Sv.fél. Skagafjarðar um framkvæmd verkefna (þjónustusamningur)Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Lagður fram viðauki við þjónustusamning milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps vegna samstarfs um rekstur Förgu, sorpmóttöku í Varmahlíð og þátttöku Akrahepps í stofnkostnaði við mannvirkið.
Byggðarráð samþykkir framlagðan viðauka við þjónustusamninginn. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins "Samningur milli Akrahrepps og Sv.fél. Skagafjarðar um framkvæmd verkefna (þjónustusamningur)" Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Lagt fram bréf frá Frjálsíþróttasambandi Íslands (FRÍ), dagsett 1. desember 2020 varðandi frjálsíþróttaaðstöðu, nýframkvæmdir og viðhald eldri mannvirkja -
Þjóðarleikvangur. FRÍ sendir hvatningu til er varðar áframhaldandi uppbyggingu og viðhaldi á íþróttamannvirkjum. Minna á mikilvægi þess, í fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2021, að fyrirliggjandi keppnis- og æfingaaðstæður verði alltaf fullnægjandi. Jafnt sem hugað sé að nýframkvæmdum í fjármálaáætlun næstu ára s.s. með undirbúningi, áætlunargerð, skipulagsgerð og annarri fjárfestingar- og þróunarvinnu. Bókun fundar Afgreiðsla 944. fundar byggðarráðs staðfest á 405. fundi sveitarstjórnar 16. desember 2020 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Samkvæmt þjónustusamningi milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps skulu hreppsnefnd Akrahrepps og byggðarráð eiga fund í aðdraganda fjárhagsáætlunar. Hreppsnefnd Akrahrepps ásamt oddvita tóku þátt í fundinum undir þessum dagskrárlið í gegnum fjarfundarbúnað.
Fram fóru almennar umræður um sameiginleg málefni og framkvæmdir. Bókun fundar Afgreiðsla 944. fundar byggðarráðs staðfest á 405. fundi sveitarstjórnar 16. desember 2020 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 27. nóvember 2020 þar sem atvinnuveganefnd Alþingis sendir yður til umsagnar frumvarp til laga um Tækniþróunarsjóð, 321. mál. Bókun fundar Afgreiðsla 944. fundar byggðarráðs staðfest á 405. fundi sveitarstjórnar 16. desember 2020 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 27. nóvember 2020 þar sem atvinnuveganefnd Alþingis sendir yður til umsagnar frumvarp til laga um opinberan stuðning við nýsköpun,322. mál. Bókun fundar Afgreiðsla 944. fundar byggðarráðs staðfest á 405. fundi sveitarstjórnar 16. desember 2020 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 30. nóvember 2020 þar sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 258/2020, "Drög að frumvarpi til laga um Fjarskiptastofu". Umsagnarfrestur er til og með 13.12.2020. Bókun fundar Afgreiðsla 944. fundar byggðarráðs staðfest á 405. fundi sveitarstjórnar 16. desember 2020 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 944 Lagður fram til kynningar tölvpóstur dagsettur 1. desember 2020 frá Bláskógabyggð þar sem bókun sveitarstjórnar Bláskógabyggðar vegna áforma um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu er kynnt. Bókun fundar Afgreiðsla 944. fundar byggðarráðs staðfest á 405. fundi sveitarstjórnar 16. desember 2020 með níu atkvæðum.