Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd - 395

Málsnúmer 2012020F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 406. fundur - 20.01.2021

Fundargerð 395. fundar skipulags- og byggingarnefndar frá 18. desember 2020 lögð fram til afgreiðslu á 406. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefásson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 395 Skipulagsfulltrúi leggur fram gögn sem skýra afmörkun íbúðarhúsalóðarinnar Freyjugötu 9, L143342, á Sauðárkróki. Gögn unnin af Stoð ehf verkfræðistofu. Lóðin hefur verið mæld upp með nákvæmum gps tækjum, og er niðurstaða mælinga, að stærð lóðar er 3.780 m2, og er í samræmi við gildandi deiliskipulag gamla bæjarins á Sauðárkróki.
    Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir afmörkun lóðarinnar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 395. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 406. fundi sveitarstjórnar 20. janúar 2021 með átta atkvæðum.