Lagður fram tölvupóstur dagsettur 23. febrúar 2021 frá nefndasviði Alþingis þar sem atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um matvæli (sýklalyfjanotkun), 140. mál. Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar tekur undir markmið frumvarpsins um að nauðsynlegt sé að bæta miðlun upplýsinga til almennings um sýklalyfjanotkun við framleiðslu matvæla til neytenda. Með þeim hætti geta neytendur tekið upplýsta ákvörðun um kaup sín á matvælum, áttað sig betur á uppruna matvæla í matvælaverslunum og notkun sýklalyfja í þeim löndum. Upplýsingar sem þessar eru mikilvægar í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi og áhættunni sem felst í að það geti borist frá löndum með útbreitt ónæmi til landa með lítið ónæmi eins og Íslands. Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar bendir jafnframt á að rétt væri að huga að útvíkkun frumvarpsins þannig að sambærilegum upplýsingum verði miðlað til neytenda á veitingastöðum og í mötuneytum hér á landi.
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar tekur undir markmið frumvarpsins um að nauðsynlegt sé að bæta miðlun upplýsinga til almennings um sýklalyfjanotkun við framleiðslu matvæla til neytenda. Með þeim hætti geta neytendur tekið upplýsta ákvörðun um kaup sín á matvælum, áttað sig betur á uppruna matvæla í matvælaverslunum og notkun sýklalyfja í þeim löndum. Upplýsingar sem þessar eru mikilvægar í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi og áhættunni sem felst í að það geti borist frá löndum með útbreitt ónæmi til landa með lítið ónæmi eins og Íslands. Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar bendir jafnframt á að rétt væri að huga að útvíkkun frumvarpsins þannig að sambærilegum upplýsingum verði miðlað til neytenda á veitingastöðum og í mötuneytum hér á landi.