Sæluvika Skagfirðinga 2021
Málsnúmer 2104068
Vakta málsnúmerAtvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf Skagafjarðar - 87. fundur - 14.04.2021
Rætt um útfærslu á Sæluviku 2021 í ljósi gildandi samkomutakmarkana. Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að halda Sæluviku 2021 dagana 25. apríl til 1. maí nk. Viðburðir verða ýmist haldnir með rafrænum hætti eða með þeim hætti sem rúmast innan gildandi samkomutakmarkana. Nefndin felur starfsmönnum sínum að setja saman dagskrá og auglýsa eftir viðburðum. Dagskrá Sæluviku má nálgast á vefsvæði sveitarfélagsins (www.skagafjordur.is) þegar nær dregur. Íbúar eru hvattir til að gera sér dagamun í Sæluviku.