Fara í efni

Umhverfisdagurinn 2021

Málsnúmer 2104123

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd Svf Skagafjarðar - 179. fundur - 19.04.2021

Sigfús Ólafur Guðmundsson, verkefnastjóri, atv. og menningarmála og Helga Björk Gunnlaugsdóttir garðyrkjustjóri sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfisdagurinn hefur verið haldinn árlega í rúma þrjá áratugi. Farið yfir fyrirkomulag og dagskrá.

Rætt var um framkvæmd umhverfisdagsins 2021. Ákveðið er að hafa umhverfisdaginn 15. maí 2021. Áskorendakeppni milli fyrirtækja og félagasamtaka verður í aðdraganda umhverfisdagsins. Dagskrá Umhverfisdagsins verður auglýst síðar á miðlum Sveitarfélagsins.

Nefndin minnir á Stóra Plokkdaginn þann 24. apríl 2021 og hvetur alla íbúa til þátttöku. Einnig minnir nefndin á Umhverfisátak í útbæ Sauðárkróks sem boðað var til af fjölda fyrirtækja í september 2020 í samstarfi við Sveitarfélagið.