Umhverfis- og samgöngunefnd Svf Skagafjarðar
Dagskrá
Dagur Þór Baldvinsson hafnastjóri sat þennan lið.
1.Ársreikningur Hafnasambands Ísl. 2020
Málsnúmer 2103256Vakta málsnúmer
Lagður var fram til kynningar ársreikningur Hafnasambands Íslands fyrir árið 2020.
Dagur Þór Baldvinsson hafnastjóri sat þennan lið.
2.Ábendingar vegna fyrirhugaðra framkvæmda við höfnina á Hofsósi
Málsnúmer 2103109Vakta málsnúmer
Ábendingar hafa borist frá notendum hafnarinnar um að endurskoða þurfi hönnun á innsiglingu Hofsóshafnar.
Nefndin þakkar fyrir ábendingarnar. Dagur Þór Baldvinsson hafnarstjóri hefur sent ábendingarnar til Siglingasviðs Vegagerðarinnar til frekari afgreiðslu og yfirferðar. Vænta má tillagna frá Siglingasviði Vegagerðarinnar um útfærslur og kostnað á verkinu fljótlega.
Nefndin þakkar fyrir ábendingarnar. Dagur Þór Baldvinsson hafnarstjóri hefur sent ábendingarnar til Siglingasviðs Vegagerðarinnar til frekari afgreiðslu og yfirferðar. Vænta má tillagna frá Siglingasviði Vegagerðarinnar um útfærslur og kostnað á verkinu fljótlega.
Dagur Þór Baldvinsson hafnastjóri sat þennan lið.
3.Móttaka á sorpi á hafnarsvæðumn
Málsnúmer 2103087Vakta málsnúmer
Hafnasamband Ísland beitir þeim tilmælum til hafna að uppfylltar verði reglur nr. 1200/2014 um móttöku og meðhöndlum á úrgangi og farmleifum.
Dagur Þór Baldvinsson hafnastjóri gerði grein fyrir stöðu málsins hjá Skagafjarðarhöfnum og kynnti áætlun um frekari flokkun á sorpi hjá Skagafjarðarhöfnum. Nefndin fagnar því að skipin eru að auka flokkun sorps um borð.

Sigfús Ólafur Guðmundsson, verkefnastjóri, atv. og menningarmála og Helga Björk Gunnlaugsdóttir garðyrkjustjóri sátu fundinn undir þessum lið.
4.Umhverfisdagurinn 2021
Málsnúmer 2104123Vakta málsnúmer
Umhverfisdagurinn hefur verið haldinn árlega í rúma þrjá áratugi. Farið yfir fyrirkomulag og dagskrá.
Rætt var um framkvæmd umhverfisdagsins 2021. Ákveðið er að hafa umhverfisdaginn 15. maí 2021. Áskorendakeppni milli fyrirtækja og félagasamtaka verður í aðdraganda umhverfisdagsins. Dagskrá Umhverfisdagsins verður auglýst síðar á miðlum Sveitarfélagsins.
Nefndin minnir á Stóra Plokkdaginn þann 24. apríl 2021 og hvetur alla íbúa til þátttöku. Einnig minnir nefndin á Umhverfisátak í útbæ Sauðárkróks sem boðað var til af fjölda fyrirtækja í september 2020 í samstarfi við Sveitarfélagið.

Helga Björk Gunnlaugsdóttir garðyrkjustjóri sat þennan lið.
5.Umhverfismál 2021
Málsnúmer 2104139Vakta málsnúmer
Helga Björk Gunnlaugsdóttir garðyrkjustjóri fer yfir vor og sumarverkin sem eru helst á dagskrá fyrir árið 2021.
6.Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2040
Málsnúmer 1906041Vakta málsnúmer
Fyrir liggur samningur um gerð umhverfisáætlunar fyrir sveitarfélagið fyrir tímabilið 2020-2040, með sérstakri áherslu á loftslagsmál, m.a. með hliðsjón af þeim breytingum sem gerðar voru í júní 2019 á lögum nr. 70/2012 um loftslagsmál.
Vinna við gerð áætlunarinnar hefur dregist og er enn ekki lokið. Umhverfis- og samgöngunefnd leggur áherslu á að þessari vinnu ljúki sem fyrst. Sviðssjóra veitu- og framkvæmdasviðs er falið að fylgja málinu eftir.

7.Ársfundur Umhverfisstofnunar, náttúruverndarnefnda og náttúrustofa
Málsnúmer 2103331Vakta málsnúmer
Ársfundur Umhverfisstofnunar, náttúruverndarnefnda sveitarfélaga og náttúrustofa verður að þessu sinni rafræn fundaröð dagana 8., 15. og 28. apríl.
8.Aðgengi íbúa að sorphirðustöðvum
Málsnúmer 2104128Vakta málsnúmer
Tillaga frá Ingu Katrínu D. Magnúsdóttur varamanns V lista um aðgengi íbúa að sorphirðustöðvum
Lagt er til að íbúar sem þess óska fái aðgangskort sem veita þeim aðgengi að helstu gámum sorphirðustöðvanna, utan opnunartíma.
Greinargerð
Nú hafa sorpgámar Sveitarfélagsins verið fjarlægðir og ætlast er til að fólk í sveitum fari sjálft með heimilissorp á sorphirðustöðvar. Íbúar hafa gagnrýnt skerta þjónustu, sérstaklega hvað varðar takmarkaða opnunartíma sorphirðustöðvanna.
Með aðgangskortum væri íbúum gefinn kostur á losa sig við sorp þegar þeim hentar, óháð opnunartíma sorphirðustöðva.
Aðgangskort væri gefið út á kennitölu og við afhendingu fengi handhafi fræðslu um flokkun sorps frá starfsmanni sorphirðustöðva, upplýsingar um æskilega umgengni um svæðið sem og með hvaða hætti fylgst er með notkun kortsins. Ítrekuð frávik frá reglum gætu þýtt afturköllun á aðgangi að svæðinu.
Mikilvægt er að unnið sé með starfsfólki sorphirðustöðvanna að útfærslu tillögunnar.
Nefndin felur sviðsstjóra að taka þessa tillögu til skoðunar í tengslum við fyrirhugað útboð í sorpmálum.

Fundi slitið - kl. 12:45.