Guðmundur Þór Elíasson og Jóhanna Friðriksdóttir á Varmalæk, Elvar Logi Friðriksson, Hvammstanga og Dagný Stefánsdóttir og Róbert Logi Jóhannesson Laugamýri sóttu um að fá spildu í landi Steinsstaða austan við Héraðsdalsveg, vestan við Steinsstaðatún. Umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi leggur til við byggðarráð að Guðmundur og Jóhanna fái spilduna til leigu. Byggðarráð samþykkir að leigja spilduna til Guðmundar Þórs Elíassonar og Jóhönnu Friðriksdóttur. Sveitarstjóra falið að sjá um gerð leigusamnings um landið og einnig að undirbúa mögulega sölu á því.
Byggðarráð samþykkir að leigja spilduna til Guðmundar Þórs Elíassonar og Jóhönnu Friðriksdóttur. Sveitarstjóra falið að sjá um gerð leigusamnings um landið og einnig að undirbúa mögulega sölu á því.