Fara í efni

Beiðni um akstur leikskólabarns með skólabíl

Málsnúmer 2106119

Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd Svf. Skagafjarðar - 169. fundur - 28.06.2021

Borist hefur erindi vegna barns sem býr í tæplega 40 km. fjarlægð frá leikskóla með ósk um að barnið fái að nýta skólaakstur. Rætt hefur verið við skólabílstjóra og leikskólastjóra. Með hliðsjón af mikilvægi þess að barnið fái að ganga í leikskóla með jafnöldrum sínum sem og með hliðsjón af vegalengd á milli heimilis og skóla samþykkir fræðslunefnd að gera undanþágu frá 5. gr. reglna sveitarfélagsins um skólaakstur í dreifbýli og heimila barninu að nota skólabílinn. Fræðslunefnd leggur áherslu á mikið og gott samráð heimilis, skólabílstjóra og leikskóla vegna þessa.