Lagt fram bréf frá Frjálsíþróttasambandi Íslands (FRÍ), dagsett 4. október 2020, þar sem sveitarfélaginu er þakkaður stuðningur og velvilji í garð íþrótta þ.m.t. frjálsíþrótta vill FRÍ senda hvatningu til handa sveitarfélaginu er varðar áframhaldandi uppbyggingu og viðhaldi á íþróttamannvirkjum og minna á mikilvægi þess. Að í fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2022 og rammafjárhagsáætlun næstu ára, sé gert ráð fyrir að fyrirliggjandi keppnis- og æfingaaðstæður fyrir frjálsíþróttir verði alltaf fullnægjandi. Jafnt sem hugað sé að nýframkvæmdum í fjármálaáætlun næstu ára s.s. með undirbúningi, áætlunargerð, skipulagsgerð og annarri fjárfestingar- og þróunarvinnu. Byggðarráð þakkar góð orð og hvatningu til að halda áfram að gera vel. Áform eru uppi um uppbyggingu og viðhald íþróttavalla í sveitarfélaginu.
Byggðarráð þakkar góð orð og hvatningu til að halda áfram að gera vel. Áform eru uppi um uppbyggingu og viðhald íþróttavalla í sveitarfélaginu.