Fara í efni

Grunnupphæðir fjárhagsaðstoðar 2022

Málsnúmer 2110163

Vakta málsnúmer

Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar - 296. fundur - 22.11.2021

Félags- og tómstundanefnd samþykkir að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar frá 1.janúar 2022 verði reiknuð með sama hætti og verið hefur, þ.e. viðmiðun grunnupphæðar fjárhagsaðstoðar árið 2022 verði 82% af lágmarks atvinnuleysisbótum á mánuði eins og þær eru í nóvember 2021. Full fjárhagsaðstoð einstaklings frá og með 1.janúar 2022 er því 252.093 kr. Vísað til byggðarráðs.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 992. fundur - 01.12.2021

Erindinu vísað frá 296. fundi félags- og tómstundanefndar þann 22. nóvember 2021 með eftirfarandi bókun: "Félags- og tómstundanefnd samþykkir að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar frá 1.janúar 2022 verði reiknuð með sama hætti og verið hefur, þ.e. viðmiðun grunnupphæðar fjárhagsaðstoðar árið 2022 verði 82% af lágmarks atvinnuleysisbótum á mánuði eins og þær eru í nóvember 2021. Full fjárhagsaðstoð einstaklings frá og með 1.janúar 2022 er því 252.093 kr.
Vísað til byggðarráðs."
Byggðarráð samþykkir framlagða gjaldskrá með þremur atkvæðum og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 419. fundur - 15.12.2021

Erindinu vísað frá 296. fundi félags- og tómstundanefndar þann 22. nóvember 2021 með eftirfarandi bókun: "Félags- og tómstundanefnd samþykkir að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar frá 1.janúar 2022 verði reiknuð með sama hætti og verið hefur, þ.e. viðmiðun grunnupphæðar fjárhagsaðstoðar árið 2022 verði 82% af lágmarks atvinnuleysisbótum á mánuði eins og þær eru í nóvember 2021. Full fjárhagsaðstoð einstaklings frá og með 1.janúar 2022 er því 252.093 kr. Vísað til byggðarráðs."
Byggðarráð samþykkir framlagða gjaldskrá með þremur atkvæðum og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Borið upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með 9 atkvæðum.