Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 989

Málsnúmer 2111003F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 417. fundur - 24.11.2021

Fundargerð 989. fundar byggðarráðs frá 10. nóvember 2021 lögð fram til afgreiðslu á 417. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Regína Valdimarsdóttir varaforseti, kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 989 Lögð fram drög að viðauka III við samning milli Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar um framkvæmd verkefna, dagsettur 30. ágúst 2019. Í framangreindan samning vantar eftirfarandi tilvísun í lagaheimild.
    Samningur milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps um framkvæmd verkefna frá 30. ágúst 2019 er gerður á grundvelli heimildar 96. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 um að sveitarfélög geti samið um að eitt sveitarfélag taki að sér verkefni fyrir annað eða önnur sveitarfélög.
    Byggðarráð samþykkir framlagðan viðauka.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreislu málsin til liðarins, Samstarfssamningar sveitarfélaga - frumkvæðisathugun ráðuneytis. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 989 Byggðarráð samþykkir að beina því til sveitarstjórnar að framlengja frá og með 1. janúar 2022 samþykkt um tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda af byggingum íbúðarhúsnæðis af hálfu einstaklinga og verktaka á lóðum við þegar tilbúnar götur á Hofsósi og Steinsstöðum. Verði það gert á grundvelli sérstakrar lækkunarheimildar sem hægt er að veita skv. 6. gr. laga um gatnagerðargjöld nr. 153/2006. Lóðir sem niðurfellingin gildir um verði tilgreindar á sérstakan hátt á yfirlitskortum yfir lausar lóðir á heimasíðu sveitarfélagsins. Ofangreind samþykkt um niðurfellingu gatnagerðargjalda gildir um lóðir sem voru byggingarhæfar fyrir 1. janúar 2019. Lóðum á Sauðárkróki og Varmahlíð sem samsvarandi ákvæði gilti um hefur þegar verið úthlutað.
    Jafnframt beinir byggðarráð því til sveitarstjórnar að veita 50% afslátt af gatnagerðargjöldum af lóðum við nýjar götur sem voru byggingarhæfar og tilbúnar til úthlutunar á árunum 2019 og 2020.
    Lóðir við nýjar götur sem verða byggingarhæfar og tilbúnar til úthlutunar eftir 1. janúar 2022 munu bera full gatnagerðargjöld.
    Ákvæðið vari til 31. desember 2022. Ákvæðið verður ekki afturvirkt og miðað er við að byggingarleyfi hafi verið veitt innan þessara tímamarka.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreislu málsin til liðarins
    Gjaldskrá gatnagerðargj. stofngj. fráveitu. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 989 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 5. nóvember 2021 þar sem atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 208/2021, "Drög að reglugerð um viðbúnað og viðbrögð við smitsjúkdómum í dýrum". Umsagnarfrestur er til og með 19.11.2021. Bókun fundar Afgreiðsla 989. fundar byggðarráðs staðfest á 417. fundi sveitarstjórnar 24. nóvember 2021 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 989 Lagt fram til kynningar bréf dagsett 2. nóvember 2021 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga til allra sveitarfélaga, varðandi verkefni vegna innleiðingar hringrásarkerfis. Ljóst er að öll sveitarfélög munu þurfa að endurskoða þau stjórntæki sem þau hafa á grundvell laga um meðhöndlun úrgangs, þ.e. svæðisáætlanir um meðhöndlun úrgangs, samþykktir um meðhöndlun úrgangs og gjaldskrár fyrir úrgangsmeðhöndlun. Bókun fundar Afgreiðsla 989. fundar byggðarráðs staðfest á 417. fundi sveitarstjórnar 24. nóvember 2021 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 989 Lagt fram til kynningar bréf dagsett 2. nóvember 2021 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga til allra sveitarfélaga varðandi boð um þátttöku sveitarfélaga í námskeiðinu Loftslagsvernd í verki sem haldið er með gagnvirkum hætti yfir netið, í Vefskóla Landverndar. Bókun fundar Afgreiðsla 989. fundar byggðarráðs staðfest á 417. fundi sveitarstjórnar 24. nóvember 2021 með níu atkvæðum.