Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 990

Málsnúmer 2111008F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 417. fundur - 24.11.2021

Fundargerð 990. fundar byggðarráðs frá 17. nóvember 2021 lögð fram til afgreiðslu á 417. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Regína Valdimarsdóttir varaforseti, kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 990 Lagt fram bréf dagsett 11. nóvember 2021 frá Húnaþingi vestra varðandi málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra, þar sem Sveitarfélagið Skagafjörður er leiðandi sveitarfélag.
    Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar lýsir yfir áhyggjum af mjög vaxandi halla á rekstri málaflokks fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra. Er sá halli tilkominn vegna aukins rekstrarkostnaðar við málaflokkinn, m.a. vegna styttingar vinnutíma hjá vaktavinnufólki, en einnig vegna þess að framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga dragast saman um tæplega 120 m.kr. á milli ársins 2020 og þeirrar áætlunar sjóðsins sem liggur fyrir varðandi árið 2021. Að óbreyttu vex kostnaður vegna viðbótarframlaga sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem þau þurfa að leggja til með málaflokknum umfram það útsvarshlutfall sem ætlað er að standa undir rekstri hans, því um 450% á milli áranna 2020 og 2021 og ber Sveitarfélagið Skagafjörður mestan þunga aukningarinnar, bæði hlutfallslega og eins hvað hreina fjárupphæð varðar.

    Í úttekt á málefnum fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra sem HLH rágjöf vann fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð og kom út í ágúst 2020, kom fram að sterkar vísbendingar væru um að skipulag þjónustu og verkefna í málaflokknum samræmdust gildandi lögum, grunnur starfseminnar væri góður, ánægja ríkti á meðal starfsfólks og að mikil þekking og reynsla væri til staðar. Tækifæri væru þó til að styrkja rekstur málaflokksins og hefur verið unnið að því þótt tveir stórir þættir hafi sett strik í reikninginn hvað rekstur liðinna mánaða varðar, þ.e. afleiðingar Covid-19 faraldursins og stytting vinnutíma hjá vaktavinnufólki.

    Byggðarráð vill árétta að Sveitarfélagið Skagafjörður hefur metnað og fagmennsku að leiðarljósi í allri umgjörð þjónustu við fatlað fólk á Norðurlandi vestra. Áherslur í þjónustu eru í samræmi við lög og reglugerðir og alþjóðlegar skuldbindingar sem íslensk stjórnvöld hafa gengist undir, einkum samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

    Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar bindur vonir við að vinna starfshópa á vegum félags- og barnamálaráðherra varðandi þjónustu við fatlað fólk, sem m.a. var kynnt á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga í liðnum mánuði, muni leiða í ljós að verulega fjármuni þarf að leggja fram af hálfu ríkisins til sveitarfélaga landsins, eigi sveitarfélögin að standa undir þeirri þjónustu við málaflokkinn sem þeim er ætlað að gera lögum samkvæmt. Er þar annars vegar um að ræða starfshóp sem ætlað er að greina kostnaðarþróun í þjónustu við fatlað fólk á árunum 2018-2020 og hins vegar starfshóp um heildarendurskoðun á lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Síðarnefnda hópnum er ætlað að meta hvaða lög, reglugerðir eða reglugerðabreytingar og stjórnvaldsfyrirmæli kunna að hafa áhrif á rekstrarkostnað sveitafélaga ? í samræmi við samkomulag um markmið um afkomu og efnahag sveitarfélaga 2021-2025.

    Minnt er á að málefni fatlaðs fólks og tilfærsla málaflokksins frá ríki til sveitarfélaga, ásamt breytingum á laga- og reglugerðarumhverfi málaflokksins í kjölfarið, er ein stærsta áskorunin sem sveitarfélög landsins standa frammi fyrir þessi misserin. Komi ekki til aukið fjármagn frá ríkinu til málaflokksins er hætt við að vaxandi útgjöld ógni fjárhagslegri sjálfbærni margra sveitarfélaga, svo sem kom fram í máli sviðstjóra hag- og upplýsingasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga á fyrrgreindri fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna.

    Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar tekur undir áhyggjur Húnaþings vestra og skorar á ríkisstjórn Íslands að bregðast nú þegar við vanda sveitarfélaganna og veita viðbótarframlagi til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til stuðnings reksturs málaflokksins.

    Bókun fundar Afgreiðsla 990. fundar byggðarráðs staðfest á 417. fundi sveitarstjórnar 24. nóvember 2021 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 990 Lögð fram samþykkt um gatnagerðargjald, stofngjald fráveitu og byggingarleyfis- og þjónustugjöld í Sveitarfélaginu Skagafirði, með gildistöku 1. janúar 2022.
    Byggðarráð samþykkir samþykktina og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreislu málsin til liðarins
    Samþykkt um gatnagerðargjald, stofngjald fráveitu og byggingarleyfis- og þjónustugjöld. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 990 Lögð fram tillaga að viðauka 9 við fjárhagsáætlun 2021. Viðaukinn er gerður vegna millifærslna fjármuna á milli deilda og auknu framlagi til umhverfismála, 5.650 þkr. og eignasjóðs, 3.900 þkr. sem og auknum tekjum sameiginlegra liða, 3.056 þkr. Samtals er þetta útgjaldaauki að fjárhæð 6.494 þkr. sem mætt er með lækkun handbærs fjár. Að auki eru gerðar millifærslur á fjárfestingaliðum áætlunarinnar, þannig að framkvæmdafé vegna byggingar leikskóla á Hofsósi eru hækkaðar um 18 mkr. og á móti er framkvæmdafé lækkað vegna byggingar á gámasvæði á Hofsósi um 10 mkr. og vegna Sundlaugar Sauðárkróks um 8 mkr.
    Byggðarráð samþykkir framlagðan viðauka og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreislu málsin til liðarins, Viðauki 9 við fjárhagsáætlun 2021. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 990 Lagt fram bréf dagsett 5. nóvember 2021 frá Kristínu Sigurrós Einarsdóttur og Guðrúnu Halldóru Þorvaldsdóttur, þar sem þær ítreka erindi sitt frá 27. maí s.l. til byggðarráðs varðandi opnunartíma sundlaugarinnar á Hofsósi. Sjá mál 2105279 á 968. fundi byggðarráðs þann 2. júní 2021.
    Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til félags- og tómstundanefndar og gerðar fjárhagsáætlunar ársins 2022.
    Bókun fundar Afgreiðsla 990. fundar byggðarráðs staðfest á 417. fundi sveitarstjórnar 24. nóvember 2021 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 990 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 16. nóvember 2021 frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti þar sem tilkynnt er um að vegna fjölgunar COVID-19 smita í samfélaginu hefur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra veitt sveitarstjórnum tímabundna heimild til að ákveða að sveitarstjórnarmönnum sé heimilt að taka þátt í fundum sveitarstjórna eða nefnda og ráða á vegum sveitarfélaga, þrátt fyrir að um annað sé getið í samþykktum þeirra. Heimildin gildir til 31. janúar 2022.
    Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreislu málsin til liðarins, Auglýsing um ákv. ráðherra til að tryggja starfshæfi sveitarstjórna. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 990 Lagt fram erindi frá Orkufjarskiptum hf. þar sem óskað er eftir leyfi landeiganda vegna framkvæmdaleyfis við að leggja ljóslögn um land Reykjarhóls L146060 samkvæmt meðfylgjandi loftmynd.
    Byggðarráð samþykkir að veita umbeðið leyfi en vill árétta að gætt sé að öðrum lögnum á lagnaleiðinni.
    Bókun fundar Afgreiðsla 990. fundar byggðarráðs staðfest á 417. fundi sveitarstjórnar 24. nóvember 2021 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 990 Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 8. nóvember 2021 þar sem mennta- og menningarmálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 213/2021, "Drög að stefnu um rafleiki/rafíðþróttir". Umsagnarfrestur er til og með 29.11.2021. Bókun fundar Afgreiðsla 990. fundar byggðarráðs staðfest á 417. fundi sveitarstjórnar 24. nóvember 2021 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 990 Lögð fram svohljóðandi bókun 31. fundar bygginganefndar Sundlaugar Sauðárkróks, þann 17. nóvember 2021.
    "Lögð fram fundargerð dagsett 9. nóvember 2021 vegna opnunar tilboða í útboðsverkið "Sundlaugin á Sauðárkróki - Áfangi 2 - Uppsteypa".
    Tvö tilboð bárust í verkið, annars vegar frá Friðriki Jónssyni ehf. sem bauð 214.981.032 kr. (109,00%) og hins vegar frá Uppsteypu ehf. sem bauð 189.053.555 kr. (95,8%) í verkið. Kostnaðaráætlun var 197.243.581 kr. Allar fjárhæðir eru með virðisaukaskatti. Engar athugasemdir komu fram fyrir né eftir opnun tilboðanna. Búið er að fara yfir tilboðin og fundust engar villur.
    Byggingarnefnd Sundlaugar Sauðárkróks samþykkir að taka tilboði Uppsteypu ehf. og vísar ákvörðuninni til afgreiðslu byggðarráðs. Jafnframt heimilar nefndin Steini L. Sveinssyni, sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að tilkynna í lok athugasemdarfrests að tilboðinu verði tekið."
    Byggðarráð staðfestir framangreinda bókun og samþykkir að tilboði Uppsteypu ehf. í verkið verði tekið.
    Bókun fundar Afgreiðsla 990. fundar byggðarráðs staðfest á 417. fundi sveitarstjórnar 24. nóvember 2021 með níu atkvæðum.