Fara í efni

Byggingarnefnd Sundlaugar Sauðárkróks - 31

Málsnúmer 2111009F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 417. fundur - 24.11.2021

Fundargerð 31. fundar byggingarnefndar Sundlaugar Sauðárkróks frá 17. nóvember 2021 lögð fram til afgreiðslu á 417. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Regína Valdimarsdóttir varaforseti, kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggingarnefnd Sundlaugar Sauðárkróks - 31 Lögð fram fundargerð dagsett 9. nóvember 2021 vegna opnunar tilboða í útboðsverkið "Sundlaugin á Sauðárkróki - Áfangi 2 - Uppsteypa".
    Tvö tilboð bárust í verkið, annars vegar frá Friðriki Jónssyni ehf. sem bauð 214.981.032 kr. (109,00%) og hins vegar frá Uppsteypu ehf. sem bauð 189.053.555 kr. (95,8%) í verkið. Kostnaðaráætlun var 197.243.581 kr. Allar fjárhæðir eru með virðisaukaskatti. Engar athugasemdir komu fram fyrir né eftir opnun tilboðanna. Búið er að fara yfir tilboðin og fundust engar villur.
    Byggingarnefnd Sundlaugar Sauðárkróks samþykkir að taka tilboði Uppsteypu ehf. og vísar ákvörðuninni til afgreiðslu byggðarráðs. Jafnframt heimilar nefndin Steini L. Sveinssyni, sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að tilkynna í lok athugasemdarfrests að tilboðinu verði tekið.
    Bókun fundar Fundargerð 31. fundar byggingarnefndar Sundlaugar Sauðárkróks staðfest á 417. fundi sveitarstjórnar 24. nóvember 2021 með níu atkvæðum.