Ártorg 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2112019
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 134. fundur - 24.02.2022
Ingólfur Jóhannsson sækir f.h. Kaupfélags Skagfirðinga, kt. 680169-5009 um leyfi til að gera breytingar á áður samþykktum aðaluppdrætti af innra skipulagi 2. hæðar skrifstofuhúsnæðis KS við Ártorg 1 á Sauðárkróki. Framlagður aðaluppdráttur gerður á teiknistofunni Úti og inni arkitektar af Baldri Ó. Svavarssyni arkitekt. Uppdráttur er í verki 2104 Kask, númer A-100, dagsettur 1. febrúar 2022. Erindið samþykkt, byggingarleyfi veitt.