Félags- og tómstundanefnd - 299
Málsnúmer 2202005F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 422. fundur - 09.03.2022
Fundargerð 299. fundar félags- og tómstundanefndar frá 10. febrúar 2022 lögð fram til afgreiðslu á 422. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Regína Valdimarsdóttir varaforseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Félags- og tómstundanefnd - 299 Lagt fram yfirlit yfir greidda Hvatapeninga og fjölda iðkenda á árunum 2017-2021. Ánægjulegt er að sjá að íþrótta- og tómstundaiðkun barna og ungmenna hefur aukist á þessu árabili. Áhugavert verður að sjá fjölda iðkenda í árslok þegar hækkun Hvatapeninga upp í 40.000 er að fullu komin til framkvæmda. Bókun fundar Afgreiðsla 299. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 422. fundi sveitarstjórnar 9. mars 2022 með níu atkvæðum.
-
Félags- og tómstundanefnd - 299 Lagt fram erindi frá Bertínu Rodriguez þar sem farið er fram á að reglur um Hvatapeninga verði endurskoðaðar með það að markmiði að lækka aldursviðmið fyrir kaup á kortum í líkamsræktarstöðvum. Reglurnar eins og þær eru nú gera ráð fyrir að einungis 17-18 ára börn geti keypt slík kort og fengið Hvatapeninga á móti, en fyrir yngri börn eru skilyrði fyrir greiðslu Hvatapeninga þau að um sé að ræða skipulagt íþrótta- og frístundastarf undir leiðsögn viðurkenndra þjálfara eða leiðbeinenda.
Erindinu frestað til næsta fundar. Bókun fundar Afgreiðsla 299. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 422. fundi sveitarstjórnar 9. mars 2022 með níu atkvæðum. -
Félags- og tómstundanefnd - 299 Frístundastjóri kynnti vinnuskjal sem sýnir þá styrki sem sveitarfélagið veitir frjálsum félagasamtökum, s.s. íþróttafélögum í sveitarfélaginu. Um er að ræða þrenns konar styrki, beina styrki til félagasamtaka t.d. vegna barna- og unglingastarfs, styrki í formi afnota af húsnæði eða öðrum mannvirkjum í eigu sveitarfélagsins og í þriðja lagi styrki þar sem vinnuframlag kemur á móti svo sem sláttur á sumrin o.fl. Bókun fundar Afgreiðsla 299. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 422. fundi sveitarstjórnar 9. mars 2022 með níu atkvæðum.
-
Félags- og tómstundanefnd - 299 Umræða um hjólabrettapalla tekin upp að nýju. Nú er lagt til að þeir verði í suðausturhorni lóðar við Árskóla. Sviðsstjóra og frístundastjóra falið að koma málinu áfram. Bókun fundar Afgreiðsla 299. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 422. fundi sveitarstjórnar 9. mars 2022 með níu atkvæðum.
- .5 2201094 Skuggakosningar ungmenna vegna sameiningaviðræðna Sveitarfélagsins Skagafjarðar og AkrahreppsFélags- og tómstundanefnd - 299 Lögð fram kynning vegna skuggakosninga í elstu bekkjum grunnskóla og yngstu árgöngum framhaldsskóla í tilefni af kosningum um sameiningu sveitarfélaganna í Skagafirði sem fram fara þann 19. febrúar n.k. Skuggakosningarnar fara fram í næstu viku. Bókun fundar Afgreiðsla 299. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 422. fundi sveitarstjórnar 9. mars 2022 með níu atkvæðum.
-
Félags- og tómstundanefnd - 299 Lögð fram til kynningar þingsályktunartillaga um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldi. Um er að ræða tillögu um að bæta verklag í upplýsingamiðlun á milli kerfa en til þess þarf rýmri lagaheimildir. Bókun fundar Afgreiðsla 299. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 422. fundi sveitarstjórnar 9. mars 2022 með níu atkvæðum.
-
Félags- og tómstundanefnd - 299 Lagt fram til kynningar bréf frá Umboðsmanni barna þar sem áréttað er mikilvægi þess að sveitarfélögum beri skylda til að leggja sérstakt mat á áhrif ákvarðana á börn sem teknar eru á vettvangi þeirra, sbr. 3. gr. Barnasáttmálans. Bókun fundar Afgreiðsla 299. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 422. fundi sveitarstjórnar 9. mars 2022 með níu atkvæðum.
-
Félags- og tómstundanefnd - 299 Eitt mál tekið fyrir. Synjað. Sjá trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 299. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 422. fundi sveitarstjórnar 9. mars 2022 með níu atkvæðum.