Íslandsmeistaramót í snjókrossi 2022
Málsnúmer 2202047
Vakta málsnúmerByggðarráð Svf. Skagafjarðar - 1002. fundur - 09.02.2022
Lagt fram bréf dagsett 26. janúar 2022 frá Guðmundi Rúnari Guðmundssyni, þar sem hann sækir um leyfi fyrir hönd Vélhjólaklúbbs Skagafjarðar um að halda Íslandsmót í snjócrossi þann 26. mars 2022 á skíðasvæðinu í Tindastóli. Með erindinu fylgir staðfesting á leyfi stjórnar Skíðadeildar Tindastóls fyrir mótshaldi á skíðasvæðinu. Byggðarráð samþykkir að veita leyfi fyrir keppninni, svo fremi að önnur skilyrði fyrir mótinu séu uppfyllt.